Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1978
svg
186,8 m²
svg
6 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir:  Bjart og vel skipulagt 186,8 m2 einbýlishús á einni hæð og bílskúr á útsýnislóð í litlum botnlanga við Arnartanga 38 í Mosfellsbæ. Birt stærð eignar eru 186,8 m2, þar af er íbúð 142 m2 og bílskúr 44,8 m2. Eignin stendur á 1066 m2 lóð með glæsilegu útsýni.
Húsið skiptist í forstofu, gang/hol, stofu, borðstofu, eldhús með borðkrók, fjögur svefnherbergi (fimm á teikningu), baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr. Tvær timburverandir eru fyrir framan og aftan hús. Stórt malbikað bílastæði. Húsið er vel staðsett í vinsælu og grónu hverfi í Mosfellsbæ, stutt frá skóla, leikskóla, verslun og allri helstu þjónustu. 
Samkvæmt upplýsingum frá seljanda var skipt um inntak og hitagrind í húsinu fyrir ca 5 árum.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax


Nánanari lýsing: 
Forstofa með fataskáp og dúk á gólfi.
Þvottahús er skolvaski, skápum, snúrum og máluðu gólfi. Gluggi er á þvottahúsi. Inn af þvottahúsi er geymsla með hillum og máluðu gólfi. þ'u þvottahúsi er aðgengi upp á háaloft.
Baðherbergið er mjög rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, handklæaðaofni, salerni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Hol er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 er inn af forstofu með dúk á gólfi. 
Svefnherbergi nr. 2 (hjónaherbergi) er með fataskápum og teppi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með dúk á gólfi
Svefnherbergi nr. 4 (tvö herbergi á teikningu) er mjög rúmgott með dúk á gólfi. Hægt væri að breyta aftur í vö herbergi. 
Eldhús og borðkrókur eru með parketi á gólfi og U-laga innréttingu. Úr eldhúsi er gengið inn í borðstofu.
Borðstofa er með teppi á gólfi. Úr borðstofu er gengið út á timburverönd og garð í norðurátt.
Stofa er rúmgóð með teppi á gólfi. Úr stofu er gengið út á timburverönd og garð í suðurátt.
Bílskúr er mjög rúmgóður, skráður 44,8 m2. Stórir gluggar eru í bílskúr.

Verð kr. 129.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ