Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1979
223,9 m²
5 herb.
3 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu: Virkilega snyrtilegt, stórt og rúmgott 5 herbergja endaraðhús; 199,9 fm ásamt sambyggðum 24,0 fm bílskúr, samtals 223,9 fm. Frábær staðsetning í Seljahverfinu. Stór sólpallur með skjólgirðingu meðfram gafli hússins og að framanverðu við jarðhæð en á annarri hæð eru svalir. Fallegur trjágróður sem kemur m.a. upp úr sólpallinum. Hús sem hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina og er í góðu ástandi.
Nánari lýsing:
Jarðhæð: Forstofa með góðum fataskáp og ljósum flísum á gólfi þar sem er innangengt í snyrtilegt þvottahús með innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara í vinnuhæð. Tvö rúmgóð svefnherbergi, annað með fataskáp og úr því er gönguhurð út á sólpallinn. Baðherbergi með sturtu.
Efri hæð: Í mjög rúmgóðu, björtu og opnu rými er eldhús, borðstofa og stofa þar sem útgengt er út á svalir. Baðherbergi með sturtu og baðkari og þar við hliðina í öðru rými salernisaðstaða. Rúmgott búr með hillum. Fín eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi og heimilistækin eru endurnýjuð. Á gólfum er gegnheilt parket.
Ris/þriðja hæð: Stórt og rúmgott unglingaherbergi og svo annað minna. Í báðum herbergjum eru þakgluggar.
Fínn bílskúr og bílaplan er malbikað með snjóbræðslu.
Talsverðar endurbætur hafa verið á húsinu undanfarin ár og má þar helst nefna ofnakerfi, rafmagn, gler/glugga, þak og fl. Nánar varðandi endurbætur í söluyfirliti.
Í alla staði stórt og rúmgott fjölskylduhús, á skemmtilegum stað! Sjón er sögu ríkari.
Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
4. júl. 2017
48.350.000 kr.
68.000.000 kr.
223.9 m²
303.707 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025