












Lýsing
Miklaborg kynnir: Hágæða íbúð hönnuð af Rut Kára með glæsilegum innréttingum.
Íbúð 601 er 5 herbergja vel skipulögð íbúð á 6. hæð með tvennum þaksvölum, bílskúr og bílastæði í bílakjallara. Glæsilegt heimili með sérsmíðuðum innréttingum frá Voké-III, Quartz borðplötum, Miele tækjum og GROHE blöndunartækjum. Flísalagt baðherbergi, vélræn loftræsting og vönduð hönnun Rut Kára skapa einstaka samsetningu þæginda og gæða. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi. Stórt alrými þaðan sem gengið er út á tvennar þaksvalir með einu besta útsýni sem hægt er að fá yfir borgina í vestur. Einstök eign. Litaþema er Dökk eik.
Ártúnshöfði er eitt mest spennandi nýbyggingarsvæði Reykjavíkur, þar sem nútímalegar íbúðir og framúrskarandi staðsetning sameinast. Fyrsti áfanginn, Hamarinn, býður upp á fjölbreyttar íbúðir sem henta bæði einstaklingum og fjölskyldum. Ekki skemmir fyrir að útsýnið er með því besta sem hverfi innan Reykjavíkur býður upp á með fallegri sýn yfir borgina og sólarlag í vestur.
Hér er allt innan seilingar – fallegar gönguleiðir, góð þjónusta og frábær tenging við borgina. Hverfið sameinar þægindi og lífsgæði og verður fljótt eitt eftirsóttasta svæði borgarinnar.
Tryggðu þér heimili í þessu einstaka hverfi – fullkominn staður fyrir framtíðina!
Nánari upplýsingar veitir Steinn Andri Viðarsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is
NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Með fataskápum er ná upp í loft.
Svefnherbergin: Þrjú svefnherbergi með fataskápum er ná upp í loft.
Eldhús: Með eldunareyju og er opin inn í stofu. Falleg sérsmiðuð innrétting. Borðplötur eru úr Quartz frá Technistone. Eldhús skilast með veggofni og 80 cm breiðu span-helluborði með innfelldum gufugleypi. Tæki eru frá Miele.
Stofa/alrými: stofa, borðstofa í björtu og opnu alrými með útgengi á stórar þaksvalir er snúa í vestur með stórkostlegu útsýni til borgarinnar í vestur. Sjónvarpsstofa til hliðar við alrými.
Baðherbergi: Tvö baðherbergi. Annað þeirra með Sturtu með Unidrain línurist og sturtugleri. Bæði baðherbergin eru með vegghengdri salernisskál frá GROHE m. mjúklokandi setu. Öll blöndunartæki frá GROHE.
Þvottahús: er innan íbúðar og með innréttingu, flísalagt gólf.
Bílskúr: 25,9 fm bílskúr í lokaðri bílgeymslu
Bílastæði: sér merkt bílastæði í lokuðum bílakjallara. Númer B26.
Geymsla er 22,3 fm.
Nánari upplýsingar veita
Steinn Andri Viðarsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is
Jón Rafn Valdimarsson löggiltur fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is
Íris Anna Geirsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is
Rebekka Rós Rósinberg löggiltur fasteignasali í síma 776-8624 eða rebekka@miklaborg.is
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is