Lýsing
Um er að ræða vel skipulagða tveggja herbergja 81.7 fm endaíbúð á 3ju hæð í nýlegu lyftuhúsi við Skipholt 11-13, vandaður frágangur og fallegar innréttingar.
Heildarhúseignin var endurbyggð frá grunni árið 2015. Stutt í alla þjónustu og verslanir.
Fallegt útsýni úr íbúð til suð-vesturs yfir höfuðborgarsvæðið.
ÍBÚÐ ER Í LEIGU ÚT JÚNÍ 2025 - HÆGT AÐ FÁ ÍBÚÐ AFHENTA STRAX OG YFIRTAKA LEIGUSAMNING EÐA TAKA VIÐ ÍBÚÐ ÞEGAR LEIGUTÍMA LÝKUR.
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 72.6 fm merkt 01-03-01 og geymsla er 9.2 fm merkt 01-00-14 , samtals 81.7 m2 að stærð.
Nánari upplýsingar um eign:
Davíð Matthíasson lögg.fasteignasali s. 898 1713 eða david@landmark.is
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Eignin skiptist í:
Forstofu en gengið er inn í íbúð af opnum svalagangi, gangur, stofa/borðstofa, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymsla í kjallara.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla í kjallara.
Nánari lýsing á eign:
Forstofa með flísum á gólfi og fatahengi.
Gangur, er inn af forstofu með góðum skápum og innbyggðu vinnuborði í innréttingu.
Stofa/borðstofa og eldhús eru í einu opnu rými og úr stofu er gengið út á stórar skjólgóðar suður-svalir, gluggar á tvo vegu í stofu.
Eldhús með góðu skápaplássi, efri og neðri skápar, innfelld lýsingu undir efri skápum, innbyggð uppþvottavél í innréttingu og ísskápur í innréttingu sem fylgir með í kaupum.
Hjónaherbergi er rúmgott með innbyggðum fataskápum.
Baðherbergi er rúmgott og er flísalagt að mestu, ágætis innrétting undir vask með skúffum, vegghengt salerni, WALK-IN sturtuklefi með glervegg og innbyggðum tækjum, handklæðaofn á vegg.
Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á baðherberginu og er gluggi á baðherbergi.
Sérgeymsla í kjallara með mikilli lofthæð.
Gólfefni: Harðparket og flísar á gólfum íbúðar.
Stór sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og snyrting á jarðhæð.
Hér er um að ræða fallega og vandaða íbúð á besta stað í Reykjavík. Stutt er í verslun og þjónustu og miðbærinn í göngufæri.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat