Lýsing
Mikil náttúrufegurð með miklu útsýni, sést meðal annars í Heklu, Bjólfell og Búrfell. Landspildan er algjör perla með mikla möguleika. Stutt inná hálendið. Aðeins 1,5klst frá bænum.
Jörðin er að stærstu leyti gróin. Enda spildur og liggur að Selsundsánni. Kalt vatn og rafmagn við lóðarmörk.
Spildurnar eru eignalönd og er fólki frjálst að ráðstafa þeim og skipuleggja að vild. Ekkert deiliskipulag er þarna svo það eru margir möguleikar í boði. Byggingarleyfi fæst í samráði við viðkomandi sveitarfélag.
Landsvæðið tilheyrir svæði Hekluskóga sem þýðir að hægt er að fá birkiplöntur til gróðursetningar án endurgjalds.
Þegar komið er að Svínhaga að sunnanverðu er farið inn á Rangárvallaveg (nr. 264) af Suðurlandsvegi austan Hellu. Vestan Gunnarholts er síðan farið inn á Þingskálaveg (nr. 268) sem liggur að Svínahaga.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali
s. 868 7048 / linda@helgafellfasteignasala.is
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 79.980,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.