Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Upplýsingar
svg
102 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FRÁBÆRAR ÍBÚÐIR Í GÖNGUFÆRI VIÐ GOLF, STRÖND OG SKEMMTILEGAN SPÆNSKAN BÆ"

Vandaðar og  fallegar 3ja herb. íbúðir á frábærum stað í litlu fjölbýlishúsi við La Serena golfvöllinn í Los Alcazares. Göngufæri á fallega strönd og gamla bæinn í Los Alcazares, þar sem svo sannarlega er sál og sjarmi, bátahöfn og skemmtilegt "promenaðe" meðfram ströndinni. Einnig eru fleiri golfvellir í nágrenninu, t.d. Roda Golf, Mar Menor golfvöllurinn, Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin og fleiri. Um 60 mín akstur til Alicante, og ca. 10 mín. akstur til Cartagena, skemmtilega spænska borg.  Fjölbreytt úrval af verslunum og veitingastöðum í göngufæri.

Allar upplýsingr veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869 

Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.

NÁNARI LÝSING:


Rúmgóðar og vel hannaðar íbúðir í þremur litlum fjölbýlishúsum.
Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa í vel tengdu rými. Góðar svalir með öllum íbúðunum, og auk þess sér þaksvalir með íbúðum á efstu hæð og sér garður með íbúðum á neðstu hæð.

Sér stæði í bílakjallara.
Sameiginlegur sundlaugargarður með góðri aðstöðu.

VERÐ, miðað við gengi 1EVRA=145ISK.
3ja herb íbúð, með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum frá 255.000 evrum (ISK 36.900.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.
Íbúðin er 84 fm. + svalir 18 fm. Samtals 102 sér afnotafm.

Íbúðum á jaðrhæð fylgir sér verönd/garður.
Íbúðum á efstu hæð fylgir  sér þakverönd.

Á sama stað er líka hægt að velja íbúðir með 3 svefnh. + 2 baðh.
Verð frá 308.000 Evrur (ISK 44.600.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. vegna kaupanna.

Íbúðirnar verða afhentar í apríl 2026 - jan. 2027.

Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð á frábærum stað.
Aðeins örfáar íbúðir í boði.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á góðum kjörum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

Los Alcázares  er mjög vinsæll sumarleyfisbær og þar er góð aðstaða til stunda sjóíþróttir. Einnig er í boði fjölbreytt afþreying og ýmsar skemmtilegar uppákomur allt árið um kring. Gott aðgengi að allri nauðsynlegri þjónustu, s.s. heilsugæslu, apótek, verslanir og fjölbreytt úrval af góðum veitingastöðum og tapasbörum.

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður,  útsýni, air con, bílakjallari, þakverönd, sér garður, strönd, golf,
Svæði: Costa Blanca, Mar Menor, Los Alcazares,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.