Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Halldóra Kristín Ágústsdóttir
Steindór Guðmundsson
Vista
hæð

Skólavegur 13

900 Vestmannaeyjar

62.900.000 kr.

327.093 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2184563

Fasteignamat

46.650.000 kr.

Brunabótamat

78.770.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1944
svg
192,3 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@husfasteign.is og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Skólaveg 13 Vestmannaeyjum sem er björt og falleg hæð og ris í tvíbýli.  Húsið er byggt úr steini árið 1944 og er eignin 193,2 m2 skv fasteignaskrá þar af er bílskúr skráður 37,3 m2.  Járn á þaki var endurnýjað árið 2022, nýleg bílskúrshurð.  Járn fylgir fyrir þak á bílskúr.   Eign á frábærum stað í Vestmannaeyjum með fallegu útsýni.

BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@husfasteign.is eða í síma 8611105

Nánari lýsing: 
Jarðhæð:

Forstofa: Flísar á gólfi, fatahengi, parketlagður góður stigi upp á efri hæð
Geymsla: Steypt gólf
Opið rými í kjallara í sameign: Steypt gólf

Miðhæð
Stofa: Parket á gólfi, rúmgóð stofa
Eldhús: Dúkur á gólfi, eldri snyrtileg innrétting, viðarpanill á veggjum
Herbergi: Parket á gólfi
Herbergi: Nýlegt parket á gólfi, skápur, útgengt á svalir með mikla möguleika, fallegt útsýni
Baðherbergi:Flísar í hólf og gólf, sturtuklefi, vaskur, opnanlegur gluggi
Salerni: Flísar á gólfi
Pallur: Steyptur pallur og timbur grinverk sem er útgengur úr herbergi, möguleiki er á að stækka hann

Efri hæð:
Herbergi: Teppi á gólfi, skápur
Herbergi: Teppi á gólfi, hrátt rými við hliðina sem býður upp á að stækka herbergi töluvert
Geymsla: Hrátt rými sem búið er að einangra en þarf að klæða, býður upp á mikla möguleika.

Bílskúr: Steypt gólf, nýleg hurð, rafmagn, gryfja undir gólfi 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi