Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Herdís Valb. Hölludóttir
Ingibjörg Reynisdóttir
Ellert Bragi Sigurþórsson
Daði Runólfsson
Vista
svg

1141

svg

840  Skoðendur

svg

Skráð  1. maí. 2025

fjölbýlishús

Safamýri 36

108 Reykjavík

69.900.000 kr.

745.203 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2014708

Fasteignamat

62.600.000 kr.

Brunabótamat

42.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1963
svg
93,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Gimli og Inga Reynis kynna í einkasölu fallega 3 ja herbergja fallega íbúð á annarri hæð, talsvert mikið uppgerða, bjarta og með tvennum svölum.
Bílskúrsréttur tilheyrir íbúðinni ásamt sérmerktu bílastæði framan við eldhúsglugga.
Um er að ræða frábæra staðsetningu mjög miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu.
Leikskóli og grunnskóli við hliðina á húsinu, ekki þarf að fara yfir götu.
Stutt í allar helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisins

*Smelltu hérna til að horfa á vídeó af eigninni*


Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 93,8 fm og þar af er geymsla í kjallara 8,4 fm

Nánari lýsing:

Anddyri er með fataskáp og parketi á gólfi, ásamt hitaskáp fyrir framan inngang í eignina.
Stofa og borðstofa er samliggjandi með parketi á gólfi og útgengi á vestur svalir.
Eldhús er með nýrri innréttingu og fínu skápaplássi, uppþvottavélartengi, nýjum ofni og nýju keramikhelluborði, borðkróki og vínilflísum á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og dúk á gólfi og útgengi á austur svalir.
Barnaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með nýjum flísum á veggjum og gólfi, innfeldum skáp, baðkari með sturtu, glugga og tengjum fyrir þvottavél.
Sérgeymsla í kjallara 8,4 fm.
Þvottahús með þurkaðstöðu er sameiginlegt í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg í kjallara hússins.
Bílastæði og bílskúrsréttur: sérmerkt bílastæði framan við eldhúsglugga.

Viðhald í íbúð undanfarin ár, að sögn seljanda.
Parket er fljótandi eikarparket, upprunalegar en sem nýjar inni- og skápahurðir, vaskur og innrétting á baði, eldhúsinnrétting er ný ásamt ofni og helluborði og tengi fyrir uppþvottavél, nýlagt gólfefni á eldhúsgólfi, dyrasími, ofnar og ofnalagnir.

Viðhald á húsi undanfarin ár, að sögn seljanda.
2024: Frárennslislögn/drenlögn í kjallara stigagangsins hreinsuð og vatnsdæla sem staðsett er í S-38 og er tengd drenlögnum undir endilöngu húsinu
endurnýjuð, kaldavatnsinntak í stigagangi endurnýjað sérstaklega. Dyrabjöllur og dyrasími endurnýjað.
2022 - 2023: Húsið var sprunguviðgert að utan og málað, þakið var málað, svalahandrið hækkuð með glervegg, gluggar og gler í stigagöngum endurnýjað,
skipt um gler og glugga í húsinu eftir þörfum hjá hverjum og einum, rafmagnstafla í sameign stigagangs endurnýjuð og ljós í stigagangi endurnýjuð, rafmagn í
anddyri stigagangs endurnýjað, þakdúkur ofan á anddyri endurnýjaður. Þá var timburgrindverk sett sett upp kringum húsið og garðinum lokað fyrir umferð
óviðkomandi. Í garði er sandkassi og róla.
2003 - 2004: Allar lagnir að og frá húsinu öllu (34-36-38) var endurnýjað og jarðvegsskipti gerð; kaldavatnslagnir, heitavatnslagnir, heimtaugar rafmagns og
síma, ljósleiðaratengingu komið á, þá var allt frárennsliskerfið (plaströr) endurnýjað frá húsvegg og út í brunn við norðurgafl, ásamt nýrri drenlögn. Ný vatnsniðurföll voru sett á bílastæði við gangstétt og brunnum með dælum komið fyrir í gangstétt til uppdælingar úr niðurföllum við ruslageymslur. Öll gangstéttin framan við húsið var
síðan endurnýjuð og tröppur að forstofum endursteyptar. Þá var gerð sérstök drenlögn í garði sem tekur við jarðvatni frá brekkurótum/garðsvæði

Eignin er einstaklega vel staðsett, miðsvæðis, stutt í alla þjónustu, skóla, leikskóla og stutt inn á stofnæðar borgarinnar.
Nánari upplýsingar veitir Inga Reynis í síma 820-1903 eða á tölvupóstinum inga@gimli.is


 

img
Ingibjörg Reynisdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Gimli fasteignasala
Skipholt 35, 105 Reykjavík
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone
img

Ingibjörg Reynisdóttir

Skipholt 35, 105 Reykjavík
Gimli fasteignasala

Gimli fasteignasala

Skipholt 35, 105 Reykjavík
phone

Ingibjörg Reynisdóttir

Skipholt 35, 105 Reykjavík