Lýsing
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is
Nánari lýsing, neðri hæð.
Anddyri: Flísar á gólfi, steyptur stigi upp í íbúð.
Forstofa: Flísar á gólfi með miklum nýjum skápum.
Hol/skál: Flísar á gólfi og stigi upp í ris.
Borð- og setustofa: Parket á gólfi, stórir gluggar til suðurs. Skv. teikningu er herbergi þar sem nú er borðstofa. Hægt að breyta aftur til fyrra horfs og fjölga svefnherbergjum eignarinnar.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, gluggi til suðurs og innan herbergis er nýr fataskápur.
Eldhús: Ný innrétting, góð vinnuaðstaða, mikið skápapláss, ofn í vinnuhæð. Í eldhúsi er ágætur borðkrókur, gluggar á tvo vegu og flísar á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og á veggjum, vegghengt wc, steyptur/flísalagður sturtuklefi, mjög góð innrétting og gluggi með opnanlegu fagi.
Efri hæð.
Hol/Sjónvarpsstofa: Flísar á gólfi, stórir kvistgluggar sem færa inn mikla birtu og frá holi er útgengt á suður svalir eignar.
Baðherbergi/Þvottahús: Flísar á gólfi, þakgluggi, vegghengt wc.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur innan herbergis, stór kvistgluggi.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur innan herbergis, stór kvistgluggi.
Eign tilheyrir fallegur sameiginlegur garður þar sem er hiti í stéttum.
Skv. upplýsingum frá seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir átt sér stað sl. ár.
2022-2023: Neysluvatns-, raflagnir, tenglar og rofar endurnýjaðir sem og baðherbergi á neðri hæð. Fataskápar í svefnherbergjum og forstofu endurnýjaðir og skipt um gler í gluggum á suðurhlið neðri hæðar og í hluta af gluggum rishæðar.
2022-2023: Öll gólfefni endurnýjuð utan stiga frá anddyri og stiga á rishæð.
2023: Nýjar rafmagnstöflur settar í íbúð, eldhús og á rishæð. Innihurðir endurnýjaðar, ofnar yfirfarnir og kranar endurnýjaðir að hluta, eldhúsinnrétting og tæki endurnýjuð. Innfelldrar svalir í risi endursmíðarar með nýjum útveggjum, gluggum, þakdúk og járni.
2024: Hús sprunguviðgert, snyrting og þvottahús á rishæð endurnýjað ásamt þakglugga á suðurhlið rishæðar. Hús málað að utan.
Afar falleg, björt, mjög vel skipulögð og mikið endurnýjuð eign í grónu og vinsælu hverfi miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason., lgfs., brynjolfur@heimili.is
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.