Lýsing
Viltu fasteignir kynna 117,4 fm 3ja herbergja íbúð með sérinngangi og bílskúr í 105 Reykjavík. Hluti íbúðar er stúdíó íbúði í risi. Góðir leigutekju möguleikar! Í dag er íbúðin öll í útleigu, möguleiki er að halda þeim leigusamning áfram. Íbúð: 68 fm (Möguleiki er að bæta við öðru svefnherbergi) stigagangur: 2,3 fm, risíbúð: 28,3 fm og bílskúr: 18,8 fm.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Nánari upplýsingar veita
Karólína Íris Löggiltur fasteignasali sími 772-6939, karolina@viltu.is
Elísabet Kvaran Löggiltur fasteignasali sími 781-2100, elisabet@viltu.is
Lýsing eignar:
Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2022, nýtt parket á alla íbúðina, eldhús flutt og endurnýjað og opnað inn í stofu, baðherbergi gert upp, allir gluggar pússaðir og lakkaðir. Nýtt eldhús í risi, gólf flotað og málað og nýjir þakgluggar settir upp.
Húsið hefur einnig fengið mikið og gott viðhald á undanförnum árum. Tröppur og stéttar hafa verið steyptar upp, skipt var um dren árið 2006 og möl sett upp við húsið. Árið 2021 fóru fram múrviðgerðir og var húsið málað að utan, skipt var um glugga og gler eftir þörfum, svalagólf og handrið voru þá einnig endurnýjuð. Fyrr á árinu 2024 var þakið málað, þakrennur og þakgluggar endurnýjaðir, ásamt því að endurnýja rafmagnstöflu í sameign.
Íbúð: 68 fm, stigagangur: 2,3 fm, risíbúð: 28,3 fm og bílskúr: 18,8 fm.
Komið er inn um sérinngang í stigagang. Gengið er upp á stigapall með fataskáp. Þaðan er gengið inn í íbúð og einnig upp í risloft og geymsluloft.
Íbúð: 68 fm. Komið er inn á gang sem tengir öll rými íbúðarinnar saman. Rúmgott eldhús í samliggjandi stofu með góðum suðursvölum. Svefnherbergi. Baðherbergi. Möguleiki væri að bæta við öðru svefnherbergi.
Risloft: 28,3 fm. Gengið er upp stiga frá stigapalli upp í stórt alrými með nýlegu eldhúsi og tveimur nýjum stórum þakgluggum. Baðherbergi með baðkari og nýju klósetti, og nýjum þakglugga. Lítil geymsla undir súð í risi. Einnig er rúmgott geymsluloft aðgengilegt á á ganginum.
Bílskúr: 18,8 fm. Bílskúrinn stendur sér með einum öðrum skúr Skúrinn er 18,8 fm með innkeyrsluhurð, gönguhurð og gluggum. Vatnslögnum var komið fyrir 2020 og er nú hitaveituofn og rennandi vatn með vaski. Loftið er óeinangrað.
Lóð: Sérbílastæði er fyrir framan bílskúrinn. Lóðin er sameiginleg. Garðurinn er tyrfður og með trjágróðri. Bílastæði er malbikað og göngustígar hellulagðir og eru hitalagnir í hluta göngustíga.
Upplýsingar: Staðsetning eignar er mjög góð og er stutt í alla almenna þjónustu svo sem skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð og verslunarkjarna. Húsið er steinsteypt og byggt 1960.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð, þ.a.m. eldhús, baðherbergi og gólfefni.
2020 - Íbúð tekin í gegn. Eldhús flutt og opnað inn í stofu. Gólf flotuð og nýtt parket á alla íbúðina. Baðherbergi flísalagt og ný eldhústæki sett upp. Gluggar pússaðir og málaðir. Ný rafmagnstafla
2020 - Stúdíóíbúð tekin í gegn. Gólf flotað og allt málað. Eldhús sett upp í endann. Nýtt klósett.
2022 - Bílskúr tekinn í gegn. Nýtt þakjárn. Köldu vatni og hitaveituofni komið fyrir.
2024 - Skólplagnir teknar í gegn. Nýjir hitaveituofnar í íbúð, risi og bílskúr.
Húsið hefur á undanförnum árum fengið mikið og gott viðhald.
2006 - Drenað kringum húsið.
2021 - Múrviðgerðir og málað allt að utan, skipt um glugga og gler í húsinu eftir þörfum. Svalargólf og handrið endurnýjuð. Tröppur og stéttar lagaðar og steyptar upp. Gróður kringum hús fjarlægður og sett möl í staðinn.
2022 - Rafmagn dregið í köldu geymslu (ljós og innstunga).
2023 - Skipt um þrýstijafnara og slaufuloka.
2024 - Þak málað, þakrennur og þakgluggar endurnýjaðir.
2024 - Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.