












Lýsing
SÝNUM DAGLEGA.
Miklaborg kynnir:
Glæsilegt fjölbýlishús með 2ja til fimm herbergja íbúðum á frábærum stað í hinu nýja Hamrahverfi í Hafnarfirði.
- Sérmerkt bílastæði fylgir öllum íbúðum með möguleika á rafbílahleðslu við hvert stæði.
- Lóð húsanna er björt og opnast í suð-vestur. Nálægð við náttúru og skóla og er leikskóli er fyrirhugaður í nokkra metra fjarlægð.
- Ný Ásvallabraut veitir greiða samgönguleið til og frá svæðinu.
- Vandaðar Arens innréttingar og tæki frá Ormsson. Allar innréttingar og skápar ná upp í loft.
Íbúð 405
Vel skipulögð og björt 114,4 fm, fjögurra herbergja íbúð á 4. Hæð. TVÖ SALERNI OG TVENNAR SVALIR. Eigninni fylgja tvö stæði í bílageymslu.
NÁNARI LÝSING: Eignin skiptist í anddyri/hol með góðu skápaplássi. Inn af anddyri er baðherbergi er með sturtu og fallegri innréttingu frá Arens. Gestasnyrting og þvottahús með innréttingu. Mjög rúmgott svefnherbergi með góðum skápum og vinnurými og tvö minni herbergi. Eldhús er opið inn í rúmgott alrými með fallegri innréttingu frá Arens. Tvennar svalir eru út af alrými. Eigninni fylgja tvö sérmerkt bílastæði. Íbúðin afhendist fullbúin án gólfefna. Vandaðar innréttingar frá Arens (sölu- og þjónustuaðili: Ormsson).
ATH myndir úr sýningaríbúð
Allar nánari upplýsingar gefa:
Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali, í síma 867-4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali, í síma 6592634 eða stefan@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is