












Lýsing
Miklaborg Fasteignasala og Safír byggingar ehf. kynna nýjar glæsilegar eignir við Suðurlandsbraut og Grensásveg. Orkureiturinn er nýtt og glæsilegt íbúðahverfi við Laugardalinn. Sannkallaður sælureitur. Sérstök áhersla lögð á endurnýtingu orku og dagsbirtuvottaðar íbúðir. Rut Kára stýrir innanhúshönnun íbúða og leggur línurnar fyrir sameigninleg rými. Inngarðar að evrópskri fyrirmynd og líkamsræktarsalur í sameiginlegu rými á jarðhæð D hlutans. Einnig verður fjölbreytt þjónusta á jarðhæð eins og kaffihús og önnur hentug nærþjónusta sem auka á lífsgæði íbúa.
Kynntu þér Orkureitinn og bókaðu skoðun hjá sölumönnum
Nánari upplýsingar veitir Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Nánari lýsing
Íbúð 705 er 130,1 fm fjögurra herbergja íbúð á sjöundu hæð. Geymsla 13,8 fm og 7,1 fm svalir sem snúa í átt að Grensás.
VAL er um litaþema íbúðar og innréttinga úr Safír Premíum línunni sem er sérvalin af Rut Kára og kemur í 6 samsetningum og er aðeins í boði fyrir sérvaldar íbúðir í D-hlutanum. Í Safír Premíum línunni er sérstakur metnaður lagður í hönnun og útfærslu ásamt ýmsum munaði sem skilar sér í glæsilegri heildarmynd.
Eignin skiptist í forstofu með góðu skápaplássi. Hjónasvítu með sér baðherbergi, svefnherbergi, sér þvottahúsi og öðru baðherbergi, skrifstofu eða sjónvarpsherbergi, eldhús í opnu rými ásamt stofu og borðstofu.
Sérvaldar vandaðar innréttingar frá GKS. Íbúðin er afhent með hágæða raftækjum frá Siemens (ofn, ísskápur, uppþvottavél), Bora (Spanhelluborð með innbyggðum gufugleypi) og Temptech (tvískiptur vínkælir).
Íbúðir eru afhentar án megin gólfefna. Baðherbergi eru flísalögð.
Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði, B048 til 10 ára í bílastæðahúsi undir D-hlutanum.
Nýjar lausnir - betri hljóðvist
Hver íbúð er útbúin loftræstikerfi með varmaendurvinnslu. Allt loft sem fer í gegnum kerfið er síað og er því minna af svifryki og frjókornum í íbúðunum en ella.
Á byggingartíma er lögð áhersla á endurvinnslu byggingarefnis, jarðvegs og gróðurs á svæðinu. Skipulag reitsins er það fyrsta í Reykjavík sem vottað er af BREEAM vistvottunarkerfinu og hefur það fengið einkunina Excellent.
Allar íbúðir við Orkureitinn eru hannaðar til að hámarka nýtingu dagsbirtu og þar með auka vellíðan og stuðla að lífsgæðum íbúa.
Nánari upplýsingar veita:
Ingimundur Ingimundarson löggiltur fasteignasali í síma 867 4540 eða ingimundur@miklaborg.is
Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692 2704 eða fridjon@miklaborg.is
Íris Arna Geirsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 770 0500 eða iris@miklaborg.is
Jórunn Skúladóttir löggiltur fasteignasali í síma 845 8958 eða jorunn@miklaborg.is
Kjartan ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663 4392 eða kjartan@miklaborg.is
Móeiður Svala Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899 8278 eða moa@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
Viðar Böðvarsson löggiltur fasteignasali í síma 694 1401 eða vidar@miklaborg.is
Þröstur þórhallsson löggiltur fasteignasali í síma 897 0634 eða throstur@miklaborg.is