












Lýsing
Miklaborg kynnir: Hágæða íbúð hönnuð af Rut Kára með glæsilegum innréttingum.
Íbúð 603 er 4ra herbergja vel skipulögð íbúð á 6. hæð með þaksvölum og hefðbundndum svölum til viðbótar, og bílastæði í bílakjallara. Glæsilegt heimili með sérsmíðuðum innréttingum frá Voké-III, Quartz borðplötum, Miele tækjum og GROHE blöndunartækjum. Flísalagt baðherbergi, vélræn loftræsting og vönduð hönnun Rut Kára skapa einstaka samsetningu þæginda og gæða. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi. Stórt alrými þaðan sem gengið er út á tvennar þaksvalir í vestur. Einstök eign. Litaþema er Náttúru Grár.
Ártúnshöfði er eitt mest spennandi nýbyggingarsvæði Reykjavíkur, þar sem nútímalegar íbúðir og framúrskarandi staðsetning sameinast. Fyrsti áfanginn, Hamarinn, býður upp á fjölbreyttar íbúðir sem henta bæði einstaklingum og fjölskyldum. Ekki skemmir fyrir að útsýnið er með því besta sem hverfi innan Reykjavíkur býður upp á með fallegri sýn yfir borgina og sólarlag í vestur.
Hér er allt innan seilingar – fallegar gönguleiðir, góð þjónusta og frábær tenging við borgina. Hverfið sameinar þægindi og lífsgæði og verður fljótt eitt eftirsóttasta svæði borgarinnar.
Tryggðu þér heimili í þessu einstaka hverfi – fullkominn staður fyrir framtíðina!
Sjá nánar www.eirhofdi.is
Nánari upplýsingar veitir Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is
NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Með fataskápum er ná upp í loft.
Svefnherbergin: Þrjú svefnherbergi með fataskápum er ná upp í loft.
Eldhús: Með eldunareyju og er opin inn í stofu. Falleg sérsmiðuð innrétting. Borðplötur eru úr Quartz frá Technistone. Eldhús skilast með veggofni og 80 cm breiðu span-helluborði með innfelldum gufugleypi. Tæki eru frá Miele.
Stofa/alrými: stofa, borðstofa í björtu og opnu alrými með útgengi á stórar þaksvalir er snúa í vestur með stórkostlegu útsýni til borgarinnar í vestur. Sjónvarpsstofa til hliðar við alrými.
Baðherbergi: Tvö baðherbergi. Annað þeirra með Sturtu með Unidrain línurist og sturtugleri og svo er gestasnyrting til hliðar við anddyrir. Bæði baðherbergin með vegghengdri salernisskál frá GROHE m. mjúklokandi setu. Öll blöndunartæki frá GROHE.
Þvottahús: er innan íbúðar og með innréttingu, flísalagt gólf.
Bílastæði: sér merkt bílastæði í lokuðum bílakjallara. Númer B13
Geymsla er 11,5 fm.
Nánari upplýsingar veita
Gabriel Máni Hallsson löggiltur fasteignasali í síma 772-2661 eða gabriel@miklaborg.is
Jón Rafn Valdimarsson löggiltur fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Steinn Andri Viðarsson löggiltur fasteignasali í síma 775-1477 eða steinn@miklaborg.is
Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is
Íris Anna Geirsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is