Opið hús: Skipholt 15, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 02. Eignin verður sýnd sunnudaginn 11. maí 2025 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.
Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 122,7 fm. og þar af er geymsla íbúðar 10,7fm.
Nánari lýsing:
Neðri hæð
Sérinngangur af svölum
Forstofa er rúmgóð með fatahengi og náttúrustein á gólfi.
Þvottahús með glugga, góð innrétting og tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara, nátturusteinn á gólfi.
Hol með innbyggðum fataskáp og náttúrustein á gólfi.
Eldhús opið með glugga, borðkrókur, snyrtileg innrétting, ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél, háfur og náttúrusteinn á gólfi.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi í mjög rúmgóðu rými með náttúrustein á gólfi. Útgengt er á vestur svalir frá borðstofu sem eru um 5 fm.
Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, upphengdu salerni, innréttingu, handklæðaofni og flísalagt í hólf og gólf.
Efri hæð
Stigi liggur upp á efri hæðina.
Gangur með parketi á gólfi. Útgengt er þaðan á stórar þaksvalir sem snúa í vestur og eru um 26 fm. Þaðan er mikið útsýni til suðurs, vesturs og norðurs yfir miðborgina og út á sjóinn.
Þrjú svefnherbergi eru á hæðinni og er útgengt á um 10 fm. austur svalir úr einu þeirra. Fataskápar í tveimur herbergjum og parket á öllum herbergjum.
Geymsla íbúðar er á jarðhæð hússins alls 10,7fm.
Sérmerkt bílastæði er í lokuðu porti bakvið hús.
Sameign er snyrtileg með mynddyrasíma. Á stigapalli á 3. hæð við lyftuna er sameiginleg geymsla. Þá er dekkja- og hjólageymsla í kjallara.
Húsið var byggt árið 1960 en árið 2000 var byggt ofan á það og er íbúðin sjálf frá þeim tíma.
Að utanverðu hefur verið gert við múrskemmdir og steypufletir voru málaðir á bakhlið, innakstursopnun á baklóð var lokað með fjarstýrðum hurðum fyrir um 2 árum en tvær innakstursleiðir eru að baklóð og eru þær læstar á nóttunni. Þá var lyftan í húsinu uppgerð fyrr á árinu 2024.
Stutt er í alla þjónustu og er matvöruverslun í götunni. Þá er stutt í skóla, leikskóla, græn svæði og miðbæ Reykjavíkur.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.