Upplýsingar
Byggt 1986
317,8 m²
11 herb.
3 baðherb.
7 svefnh.
Opið hús: 11. maí 2025
kl. 12:00
til 12:30
Opið hús 11. maí kl. 12:00 - 12:30
Lýsing
Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs., sími 844-9591 kynna glæsilegt þriggja hæða, 317 fm parhús í Hvassaleitinu með sér íbúð á jarðhæð.
Eignin hefur verið mjög mikið endurnýjuð á vandaðan og smekklegan hátt á síðustu árum. Um er að ræða gott fjölskylduhús í rólegu hverfi, miðsvæðis í Reykjavík. Örstutt er í alla þjónustu s.s. leik,- grunn-, og menntaskóla, heilsugæslu og Kringluna. Aðkoma að húsinu er góð, stórt bílaplan sem rúmar allt að fimm bíla við húsið.
Fasteignin er á þremur hæðum, jarðhæð með sér íbúð og tveimur hæðum, mið og efri hæð. Aðalinngangur er á miðhæð í forstofu og gestasnyrting inn af henni, þar er ný hitalögn í gólfi í báðum rýmum, flísar á gólfi og ný hreinlætistæki á snyrtingu.
Komið er inn á gang sem tengist rúmgóðu eldhúsi með stórum borðkrók. Innar á gangi er stigi upp á efri hæð en innst er stór stofa og borðstofa. Búið er að yfirbyggja svalir, með gólfhita, og opna inn í stofur. Útgengt er úr stofu út í garð sem er með sólpalli, trjágróðri og grasflöt. Innangengt er í bílskúr af hæðinni.
Á efri hæð er komið upp í stórt opið rými sem nýtist sem sjónvarpsstofa, litlar svalir eru út frá þessu rými. Fjögur svefnherbergi eru á hæðinni þar af tvö sem búið er að sameina í eitt og svalir út frá hjónaherbergi.
Sér íbúð á jarðhæð: Glæsileg 3-4 herbergja íbúð með sérinngangi. Íbúðin var gerð upp 2022 og allir útveggir einangraðir að nýju, hitalögn fræst í gólfplötu, nýtt parket lagt sem og allar raflagnir, vatnslagnir, frálagnir út í götu, öll gólf flotuð og innréttingar settar upp. Öflug loftræsting er í eldhúsi og baðherbergi.
Góður sólpallur er á baklóð og snýr í norð-vestur með skjólgirðingum að hluta, trjágróður er einnig á lóðinni. Lóðin er skjólsæl og aðkoma að húsinu er einstaklega góð.
Hér er um að ræða einstaklega rúmgott hús með sér íbúð með sérinngangi á besta stað. Allir helstu skólar og þjónusta eru í göngufæri og Kringlan handan við hornið.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs., í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.