












Lýsing
Miklaborg kynnir: Parhús með bílskúr í nýju hverfi við Flúðir í Hrunamannahreppi. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, rúmgott alrými, forstofa og bílskúr.
Hönnun og byggingarnefndarteikningar eru frá Pro-Ark. Húsið skilast fokhelt , áætluð afhending er 1. maí 2025
Í húsinu er forstofa, tvö barnaherbergi, hjónasvíta með baðherbergi, baðherbergi, þvottahús, rúmgott alrými með eldhúsi,borðstofu og stofu og bílskúr.
Nánari lýsing samkvæmt skilalýsingu
Sökklar: Sökklar eru steyptir og einangraðir að innan.
Gólfplata: Gólfplata er steypt og einangruð með gólfhita í. Neysluvatnslagnir eru lagðar skv. verkfræðiteikningum, rör í rör.
Útveggir: Allir útveggir hússins eru úr timburgrind. Húsin eru klætt að utan með litaðri smábáru frá Húsasmiðjunni RAL 9005.
Gluggar og hurðir: Allir gluggar og útihurðir eru úr ál/tré. Tvöfalt verksmiðjugler frá viðurkenndum framleiðanda er í húsinu og flyst ábyrgð þess áfram til kaupenda. Söluaðili er Gluggatækni. Litur að utan er RAL 9005 (svart) og sami litur að innan.
Þak: Tvíhalla þak er á húsinu og er það lituð stálklæðning í lit RAL 9005 (svart).
Þakkantur: Þakkantur er timburklæddur með Svörtum lit
Niðurföll og þakrennur: Þakniðurföll eru úr áli frá Hagblikk og rennur eru úr plasti frá Húsasmiðjunni.
Lóð: Lóð afhendist grófjöfnuð.
Nánari upplýsingar veitir
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is