












Lýsing
Miklaborg kynnir:
Atvinnuhúsnæði við Gjáhellu 5 í Hafnafirði. Stærð skv. FMR er 209,6 fm á tveimur hæðum. Á fyrstu hæð er stór salur, birt stærð 108,4 fm, skráð sem salur. Stór bílskúrshurð. Salernisaðstaða. Á annarri hæð, birt stærð 101,2 fm, skráð sem skrifstofa. Þrjár skrifstofur þvottahús, baðherbergi, alrými og stórt og rúmgott eldhús. Nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Gjáhella 5 er tveggja hæða steinsteypt hús klætt að utan með lárétti bárujárnsklæðningu. Húsið er ætlað undir léttan iðnað og snyrtilega atvinnustarfsemi og skiptist í 10 tveggjahæða séreignarrými. Allar séreignir hafa sér hita- og rafmagnsmæli og eru hitagrindur staðsettar á 1. hæð hvers rýmis fyrir sig.
Fyrsta hæð: Birt stærð 108,4 fm, skráð sem salur. Salernisaðstaða. Stór Bílskúrshurð. Góð lofthæð. Salerni er í framkvæmdum og mun seljandi klára þær framkvæmdir.
Önnur hæð: Gengið upp flísalagðan stiga upp á aðra hæð. Öll hæðin nýuppgerð. Skráð sem skrifstofur. Þrjár skrifstofur, þvottahús, baðherbergi, gott alrými og stórt eldhús. Eldhúsinnrétting kemur frá HTH, Ormsson og tæki frá AEG. Harðparket og flísar á gólfi og flísalagt baðherbergi.
Eignin er skráð á B3 og M8. Unnið er að lokaúttekt.
Allar nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is