Lýsing
Samkvæmt fasteignaskrá er íbúðarrýmið 187,2 fm og bílskúrinn 51,5 fm samtals 238,7 fm.
Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, stórt hol, stóra og bjarta stofu, eldhús, tvö baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús og stór bílskúr.
Nánari upplýsingar má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is
Lýsing:
Gengið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp. Inn af forstofu er svefnherbergi. Komið er inn í stórt hol sem tengist borðstofu og svefnherbergis gangi. Falleg flísalögð gestasnyrting. Stór og björt stofa sem er skipt upp í neðri og efri stofu, stofan er björt með góðum gluggum þar sem er frábært útsýni og mikilli loftæð, ennig er gengið út á suðurverönd frá stofunni. Eldhús með fallegri innréttingu, mikið skápapláss, tengi fyrir uppþvottavél og borðkókur, tveir inngangar eru í eldhúsið. Stórt og mikið hol sem tilvalið er að nýta sem fölskyldurými eða sjónvarpshol. Hjónaherbergið er með fataherbergi og baðherbergi sem er fallega innréttað og með walk-in sturtu. Geymslurými er fyrir ofan fataherbergi. Einnig er gengið út á verönd frá hjónaherbergi. Barnaherbergin tvö með mikilli lofthæð og hefur verið bætt við annari hæð í samskonar húsi inn í barnaherbergjum. Þvottahús með fallegri innréttingu og útgengt út á verönd og einnig er innangengt í bílskúr. Þvottahúsið var hannað svo það væri hægt að nýta það sem eldhús ef húsinu yrði skipt upp í tvær einingar. Flísalagt baðherbergi með fallegri innréttngu, walk in sturta með innfeld blöndunartæki og frístandandi baði, einnig með innfeld blöndunartæki.
Bílskúr: Stór 51.5 fm tvöfaldur bílskúr með tveimur innkeyrsluhurðum, rafmagnsopnarar, vatni, rafmagni og hita. Innangengt er í þvottahúsið frá bílskúrnum.
Góflefni: Harðparket á gólfum fyrir utan votrými sem eru flísalögð. hitalögn er í gólfum.
Lóð: Lóðin er grófjöfnuð að mestu.
Byggingarupplýsingar:
Útveggir og þak byggt upp með CLT timbureiningum. Í gluggum er tvöfalt einangrunargler, gluggar eru ál/trégluggar. Útveggir klæddir með límdri álklæðningu.
HÉR ER UM AÐ RÆÐA VIRKILEGA FALLEGT OG VEL STAÐSETT FJÖLSKYLDUHÚS - STUTT ER Í GRUNN- OG LEIKSKÓLA, SUNDLAUG OG ÍÞRÓTTAHÚS, VERSLANIR, ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU OG NÁTTÚRUNA - EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður