Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr.
Ásmundur Skeggjason
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Kristinn Tómasson viðsk.fr. MBA
Þórarinn Friðriksson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1983
svg
340 m²
svg
10 herb.
svg
5 baðherb.
svg
6 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fallegt og vel staðsett einbýlishús í Bleikjukvísl 17, í Ártúnsholti í 110 Reykjavík. Eignin er skráð 340 fm en þar af er bílskúr 28,1 fm. Þessu til viðbótar er 70 fm rými í kjallara sem er óskráð. Húsið er bjart og með einstöku útsýni. Garðurinn er fallega skipulagður og sólríkur. Hitalögn er í bílaplani við bílskúr og í tröppum við aðalinngang. Nýstandsett íbúð er í kjallara, tilvalin til útleigu. Tækifæri er fyrir kaupendur að standsetja aðra íbúð til útleigu í garðhýsi.

Nánari lýsing:                                          
Bleikjukvísl 17 er teiknuð af Kjartani Sveinssyni, byggingartæknifræðingi. Húsið er einstaklega vel hannað og fellur vel að umhverfinu. Húsið er staðsett innst í götunni og aðkoman er afar snyrtileg.

Aðalhæð: Gengið er upp tröppur af bílaplani inn á aðalhæð hússins. Komið er inn í rúmgott flísalagt anddyri með fatahengi. Vel upplýst gestasnyrting er inn af anddyri á hægri hönd. Rúmgóð stofa er á hægri hönd þegar gengið er inn í húsið úr anddyri. Fallegir gluggar eru í stofunni þar sem er stórkostlegt útsýni yfir höfuðborgina. Stór steyptur arinn er á milli stofu og borðstofu. Eldhúsið er vel skipulagt. Árið 2021 voru endurnýjuð tæki og granítsteinn á borðum. Stofan og eldhúsið eru parketlögð. Inn af eldhúsi er flísalagt þvottahús. Góð aðstaða er í þvottahúsi með miklu skápaplássi og vaski. Úr borðstofu og þvottahúsi er hægt að ganga út á verönd og út í garð.
Til vinstri frá anddyri eru þrjú björt og rúmgóð parketlögð svefnbergi, ásamt aðalbaðherbergi hússins. Í baðherberginu er innrétting með handlaug og stórum spegli, sturtuklefa og baðkar. Flísar eru á veggjum og gólfi. Gott skápapláss er í húsinu. Parketið var sett á hæðina árið 2021.

Sólskáli og garðhýsi: Innangengt er úr stærsta svefnherberginu á hæðinni í gegnum flísalagðan sólskála út í garðhýsi. Sólskálinn er í dag nýttur sem vinnuaðstaða og æfingarými. Í garðhýsinu er parketlagt svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og salerni og opið flísalagt rými með eldhúsinnréttingu og stofu. Hægt er að útbúa garðhýsið sem sérstaka íbúð til útleigu.
Bílskúr og kjallari: er rúmgóður bílskúr og þar er hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Geymsluloft með miklu geymslurými er yfir hluta af bílskúrnum með góðu aðgengi. Inn af bílskúr er kjallararými og þaðan er innangengt upp á efri hæð hússins. Gott geymslurými er í kjallara, en þar er einnig um 70 fm rými sem telst ekki með í uppgefinni fermetratölu hússins og hægt er að nýta sem tómstundarými. Þar er einnig baðherbergi með salerni og vaski.

Kjallaraíbúð: Í kjallara er nýstandsett um 70 fm íbúð sem er kjörin til útleigu. Íbúðin er björt og vel upplýst. Gengið er inn í rúmgott anddyri og þaðan inn í opið rými með eldhúsi og stofu. Ný innrétting er í eldhúsi, með innbyggðum ísskáp og góðri vinnulýsingu undir efri skápum. Í innréttingunni er gert ráð fyrir að hægt sé að tengja þvottavél og uppþvottavél. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og baðherbergi með sturtu og salerni.
Samtals eru 5 baðherbergi/salerni í öllu húsinu og 6 svefnherbergi.
Um er að ræða frábært fjölskylduhús sem býður upp á marga möguleika.
Fallegur gróinn garður er í kringum húsið, með fjölbreyttum trjám og blómplöntum. Gróðurhús var sett í garðinn sumarið 2023 ásamt timburverönd. Gert er ráð fyrir lögnum fyrir heitan pott. Í garðinum er einnig garðhýsi fyrir húsgögn og áhöld.
Gott viðhald hefur verið á eigninni. Árið 2020 var þak yfirfarið, skipt um nagla og flasningar, skipt um glugga og gler þar sem þurfti og húsið málað að utan.
Eignin er mjög vel staðsett, stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, þjónustu, íþróttasvæði, sundlaug og fallegar gönguleiðir í Elliðarárdalnum. Þægilegt aðgengi að almenningssamgöngum.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason fasteignasali as@hofdi.is, Gsm 895 3000.
 

 

 
 
 

img
Ásmundur Skeggjason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Höfði fasteignasala
Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone
img

Ásmundur Skeggjason

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. sep. 2024
172.300.000 kr.
175.000.000 kr.
10101 m²
17.325 kr.
22. mar. 2021
107.150.000 kr.
130.000.000 kr.
323.5 m²
401.855 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone

Ásmundur Skeggjason

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík