Lýsing
Möguleiki á séríbúð til útleigu á neðri hæð eða gæti hentað samhentri fjölskyldu, t.d. foreldrum og börnum.
Arnar Guðmundsson og Fasteignasala Akureyrar kynna til sölu virðulegt og vel byggt 268,9 fm (+12,1 sameign) einbýlishús/tvíbýli, þar af er séríbúð 47,2 fm og 35,2 fm bílskúr. Húsið er á tveimur hæðum á yfir 900 fm lóð sem liggur fyrir neðan Háhlíð 2 og aðkoman að bílskúr frá götu og stíg milli Háhlíðar 4 og 6. Staðsetning hússins gefur einstakan frið og útsýni.
Húsið skiptist í aðalíbúð (Háhlíð 4A) og séríbúð á jarðhæð (Háhlíð 4B), hvor tveggja með samþykktum teikningum og eignaskiptayfirlýsingu.
Húsið stendur hátt í grónu og rólegu hverfi með stórkostlegu útsýni yfir Eyjafjörð, Vaðlaheiði og fjallahringinn.
Háhlíð 4A – Aðalíbúð (221,7 fm + 12,1 fm sameign + bílskúr 33,7 fm) fnr. 214-7016
3 rúmgóð svefnherbergi (möguleiki á fjórða)
2 baðherbergi, annað nýtt (frágangur í kringum baðkar eftir)
Stórar samliggjandi stofur með hlöðnum arni og útgengi á tvennar svalir (austursvalir með víðáttusýn og morgunsól og suðursvalir með fallegu útsýni yfir garð og bæ og í átt að súlum)
Bjart eldhúsrými er í dag með stökum einingum að ítalskri fyrirmynd, hrátt rými sem er tilbúið undir nýja innréttingu. Búið er að gera ráð fyrir og undirbúa lagnir að neðanverðu sem koma í nýja rýmið þegar það verður hannað.
Skrifstofurými, sérgeymsla og sameiginlegt anddyri/tækjarými
Fallega gróin og skjólgóð lóð með sólríkri verönd og miklu næði
Á neðri hæð: Flotað gólf, nýtt gólfhitakerfi, nýtt rafmagn og lagnir nýrra rýma, tenglaefni nýtt, Hydrocork parket, LED lýsing og nýjar hurðir. Loftið tekið í gegn.
Gluggar eru með þreföldu gleri sem gefur einstaka hljóðvist, opnanleg fög og hurðir eru með tvöfalt.
Tveir inngangar
Tvö bílastæði
Háhlíð 4B – Séríbúð (47,2 fm + 12,1 fm sameign) fnr. 253-6994
Eitt svefnherbergi, björt og smekkleg hönnun
Opið eldhús/stofa með granítborðplötum og vönduðum tækjum (Miele & Siemens)
Endurnýjað baðherbergi og gólfhiti á allri íbúð - allar lagnir nýjar eða yfirfarðar, rafmagn, vatn, dren og fráveita
Sérinngangur, eitt bílastæði og aðskilnaður með brunavarnavegg og hurð frá sameignarrými
Samþykktar teikningar sem bjóða uppá uppfærslu ef vill
Eitt bílastæði við bílskúr
Lóðarhluti í norðaustuátt við inngang að neðanverðu
Flotað gólf með gólfhita og Hydrocorkparket - vatnshelt, umhverfisvænt og með hljóðdempun
Bjart loft - nýlega gert upp allt loft á neðri hæðinni, heilsparslað og málað.
Nýjar hurðir með innföldum þröskuldum
Gluggar eru með þrefalt gler sem gefur einstaka hljóðvist, opnanleg fög og hurðir eru með tvöfalt gler
Staðsetning er norðan við Glerá, stutt frá verslun og heilsugæslu, leikskóla, grunnskóla, háskóla og falleg útivistarsvæði í nágrenninu.
Háhlíð 4A – Glæsileg íbúð að hluta til á tveimur hæðum með bílskúr, tvennar svalir, verönd og stórbrotið útsýni!
603 Akureyri – Heildarstærð 221,7fm þar af bílskúr 33,7 fm.
Arnar Guðmundsson fasteignasali og Fasteignasala Akureyrar kynna til sölu virðulegt og rúmgott einbýlishús í tvíbýli á tveimur hæðum í Glerárhverfi.
Eignin er á 906,8 fm eignarlóð, byggð árið 1982 og skiptist í aðalíbúð (Háhlíð 4A) og séríbúð á jarðhæð (Háhlíð 4B). Húsið stendur hátt og býður upp á einstakt útsýni yfir Eyjafjörð, Vaðlaheiði, Kaldbak, Súlur og Hlíðarfjall – bæði af efri hæð, neðri hæð og útisvæðum.
Háhlíð 4A og 4B er stór og vel skipulögð eign í virðulegu tvíbýlishúsi í grónu og vinsælu hverfi á Akureyri. Heildarstærð eignarinnar er 268,9 fm, 12.1 fm sameign og fylgir 35 fm stakstæður bílskúr með geymslulofti (bílskúrinn er samliggjandi bílskúr Háhlíð 2).
Eignin spannar tvær hæðir: 4A sem er efri hæð og hluti jarðhæðar og hefur á síðustu árum verið mikið endurnýjuð, sérstaklega á neðri hæð. Þar má finna tvö svefnherbergi, skrifstofurými, nýtt baðherbergi með stóru baðkari og vandaðri innréttingu, og nýtt Hydrocork parket á allri hæðinni. Gólf voru flotuð og sett nýtt gólfhitakerfi ásamt því að allar lagnir (rafmagn, vatn og fráveita) hafa verið endurnýjaðar. Nýjar hurðir eru á hæðinni og lýsing og rofar frá Rönning. Loft eru öll spörsluð og máluð með hágæða málningu. Inn af sameign er sérgeymsla sem fylgir eigninni, og anddyri ásamt tækjarými er sameiginlegt fyrir húsið.
Efri hæðin er björt og rúmgóð, með forstofu sem hefur sér smíðaðar innréttingar (upprunalegar) og glerlistaverk í fallegri útidyrahurð. Eldhúsið er samsett úr stökum einingum að ítalskri fyrirmynd í dag – lausn sem býður upp á góða nýtingu og sveigjanleika þar til sett verður upp nýtt eldhús. Rýmið opnast inn í borðstofu og samliggjandi stofur, sem aðskildar eru með hlöðnum arni. Frá stofu og borðstofu er aðgengi að tvennum svölum – rúmgóðum í austur og minni í suður. Úr öllum helstu rýmum er frábært útsýni.
Eina svefnherbergið á efri hæð er rúmgott hjónaherbergi, en möguleiki er á að breyta hluta stofurýmis í aukaherbergi, eins og sjá má á teikningum. Baðherbergið á hæðinni er með sturtuklefa, vaskaskáp og tengi fyrir þvottavél. Loftaplötur hafa verið fjarlægðar á hæðinni, loftin heil spörsluð og máluð hvít. Stór hluti veggja og ofna hefur einnig nýverið verið málaður.
Lóðin er fallega gróin og einkennist af miklu næði og góðri sólarstefnu. Steypt sólarverönd er við aðalinngang og bílaplan er við bílskúrinn. Tvö stæði fylgja eigninni. Þak og ytra byrði hússins er í góðu ásigkomulagi og gluggar eru með þreföldu gleri (tvöfalt í opnanlegum fögum).
Íbúðin Háhlíð 4B er á jarðhæð alls 47,2 fm að stærð auk 12 fm sameignar – anddyri, þvottahúsaðstaða, gangur og geymsla.
Íbúðinni fylgir eitt bílastæði fyrir framan bílskúr og lóðarhluti í norðausturátt við inngang að neðanverðu.
Eignin hefur verið endurnýjuð að miklu leiti á síðustu árum.
Hápunktar eignarinnar:
Allar lagnir nýjar – rafmagn, vatn, dren og fráveita
Gólfhiti í allri íbúðinni
Hydrocorkparket – vatnshelt, umhverfisvænt og með hljóðdempun
Nýjar hurðir
Brunavarnahurð sem aðskilur íbúð frá aðalhúsi
Snyrtileg og notaleg eign með vönduðum frágangi
Samþykkt teikning fylgir eigninni
Skipulag:
Aðkoma: Snyrtilegar tröppur að inngangi. Rauðmáluð anddyrishurð.
Forstofa: Þægileg aðstaða með hitaveitugrind, nýjum varmastilli og plássi fyrir þvottavél/þurrkara. Aðgengi að útisnúrum.
Gangur: Smekklega skreyttur með listum, hvít loft og hvítar hurðir.
Svefnherbergi: Rúmgott og bjart, nýmálað í hlýlegum tónum.
Eldhús/stofa: Snyrtileg innrétting með svörtum granítborðplötum, Siemens ofni, Miele uppþvottavél og nýjum koparlituðum ljósháf. Pláss fyrir borð og lítið setusvæði.
Baðherbergi: Endurnýjað með hvítum innréttingum, granítvaskaborði, sturtu og handklæðaofni.
Heildarstærðir :
Heildarstærð hússins: 268,9 fm auk 12 fm sameignar
Bílskúr: 33,7 fm með geymslulofti
Séríbúð 47.2 fm (góðar leigutekjur og samningur við einstaklega góðan leigjanda getur fylgt).
Sameign á austurhlið (anddyri, gangur og tækjarými): 12 fm
Samþykkt teikning af Háhlíð 4B og eignaskiptayfirlýsing fylgja
Háhlíð 4A – Aðalíbúð (221,7 fm + bílskúr)
Skipulag og rými
3 svefnherbergi: tvö á neðri hæð, eitt á efri hæð
Möguleiki á fjórða svefnherbergi í stofurými (samkvæmt teikningu)
2 baðherbergi:
Nýtt baðherbergi með stóru baðkari á neðri hæð/möguleiki á þvottaaðstöðu
Baðherbergi með sturtuklefa og þvottaaðstöðu á efri hæð
Bjart eldhús með stökum einingum að ítalskri fyrirmynd – tilbúið undir nýja innréttingu
Rúmgóð borðstofa og stofur með hlöðnum arni og stórum gluggum
Skrifstofurými á neðri hæð með útsýni
Sérgeymsla inn af sameign
Endurnýjun og frágangur
Flotuð gólf á neðri hæð og fræst fyrir gólfhitalagnir
Nýtt gólfhitakerfi og nýjar lagnir fyrir vatn og fráveitu
Nýjar vatnslagnir og rafmagn dregið í ný rými
Hydrocork parket á allri hæðinni
Nýjar hurðir, eldvarnarhurðir, tenglar, rofar og LED lýsing
Loft hækkuð, heil spörsluð og máluð
Á efri hæð hafa loftaplötur verið fjarlægðar, loftið heil sparslað og málað og stór hluti veggja og ofna nýlega málaður
Í stofu á efri hæð er upptekið loft með panel
Útisvæði og útsýni
Tvennar svalir:
Austursvalir með víðáttusýn og morgunsól
Suðursvalir með fallegu útsýni yfir garð og bæ
Steypt verönd á jarðhæð við hús með skjólgóðri útiveru
Garður: vel hirtur, gróinn og með miklu næði
Bílskúr og stæði
Stakstæður bílskúr (33,7 fm) (samtengdur bílskúr í Háhlíð 2) með rafmagnsopnun, gluggum og geymslulofti
Tvö bílastæði fylgja:
Eitt beint fyrir utan bílskúr
Annað í beinu framhaldi af bílastæði við bílskúr
Háhlíð 4B – Séríbúð á jarðhæð (47,2 fm + 12 fm sameign)
1 svefnherbergi með háum glugga, veggir málaðir hvítir og einn dökkblár með hvítu möttu lofti.
1 baðherbergi með lokuðum sturtuklefa, vaskborði og innfelldu salerni og handklæðaofni
Opið rými eldhús og stofu. Granítborðplötur, kopartónar í viftu og veggjum og vönduð tæki (Miele & Siemens)
Hiti í gólfum, Hydrocork parket, nýtt rafmagn og nýjar vatns- og frárennslislagnir fyrir eldhús og baðherbergi
Íbúðin byggð á nýflotuðu og fræstu gólfi með gólfhitalögnum
Aðskilin með brunavarnavegg og hurð frá sameign
Sérinngangur um anddyri í sameign sem er lítið gengið um af Háhlíð 4A
Eitt sérmerkt bílastæði fyrir framan bílskúr
Samþykkt teikning fylgir eigninni
Eignaskiptayfirlýsing fylgir eigninni
Að utan og staðsetning
Húsið hefur verið nýlega málað og þakið er í góðu ásigkomulagi
Gluggar með þreföldu gleri (tvöfalt í opnanlegum fögum)
Lóðin er fjölbreytt og gróin með fallegum trjám og plöntum
Einstaklega róleg og eftirsótt staðsetning í göngufæri við leikskóla, skóla og verslun
Háhlíð 4 er fjölnota og traust einbýliseign sem býður bæði upp á vandað heimili og möguleika á útleigu, tvær samþykktar íbúðir, bílskúr, glæsilegt útsýni og falleg útivistarsvæð í nágrenninu.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 arnar@fastak.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.