












Lýsing
Miklaborg og Byggingafélagið Hvati kynna: Geymsluhúsnæði að Vesturbakka 11 í Þorlákshöfn. Húsið skiptist í 12 einingar, 72 fm að stærð. Húsið er á einni hæð með malbikaðri lóð, gert er ráð fyrir einu bílastæði fyrir framan hverja einingu.
Tilbúið til afhendingar !
Nánari upplýsingar veitir Óskar Sæmann í síma 6912312 eða osa@miklaborg.is
Nánari lýsing:
Um er að ræða atvinnu/geymslu -húsnæði við Vesturbakka í Þorlákshöfn. Húsið skiptist í 12 einingar, hvert bil 72 fm að birtri stærð. Húsið er á einni hæð með malbikaðri lóð, gert er ráð fyrir einu bílastæði fyrir framan hverja einingu
Almenn lýsing samkvæmt skilalýsingu:
Húsið er byggt ofan á steypta sökkla. Hefðbundin staðsteypt plata, einangruð að innan með gólfhita. Neysluvatnslagnir eru lagðar samkv. verkfræðiteikningum, rör í rör. Útveggir og þak hússins eru úr yleiningum, samlokueiningar frá Kingspan. Burðarvirki er límtré. Litur klæðninga að utanverðu er RAL7016 og að innan RAL 9010. Þakkantur er einfaldur, stálklæddur í sama lit og þakefni með utanáliggjandi álrennum og niðurfallsrörum í sama lit. Iðnaðarhurðir eru 4,35 m á hæð frá Héðni hf , litur RAL 7016, með rafmótoropnun. Gönguhurðir og gluggar eru úr viðhaldsfríu PVC plasti með tvöföldu einangrunargleri. Litur RAL 7016. Frárennslis og neysluvatnslagnir: Skólp‐ og regnvatnslagnir eru fullfrágengnar og tengdar fráveitukerfi í götu. Salerni eru fullfrágengin í hverri starfseiningu. Gólfniðurfall er fyrir innan allar innkeyrsluhurðir.
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0,3% af væntanlegu brunabótamati.
Allar nánari upplýsingar gefur:
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is