Lýsing
Heilsárs sumarhús við Víðilund 17 í Varmahlíð – stór lóð, pallur með setlaug og frábært útsýni!
Um er að ræða vel staðsett og vel við haldið 55,2 fm heilsárs sumarhús úr timbri á steyptum súlum, staðsett neðan við Varmahlíð í Skagafirði. Húsið stendur á 4.539 fm leigulóð í fallegu umhverfi með víðáttumiklu útsýni og góðum tengingum við þjónustu í nágrenni.
✅ Heilsárs sumarhús á 4.539 fm leigulóð
✅ Timburpallur til suðurs og austurs með heitum potti
✅ Tvö svefnherbergi og svefnloft
✅ Geymsla við hús og aukaskúr á lóð getur fylgt
✅ Vel einangrað hús með útisturtu og góðu aðgengi
Nánari lýsing:
Forstofa: Dúklögð með fatahengi.
Stofa & eldhús: Í sameiginlegu, björtu rými með parket á gólfi og mikilli lofthæð. Eldhúskrókur með grænni innréttingu og grárri borðplötu.
Herbergi: Tvö parketlögð svefnherbergi, annað með kojum.
Baðherbergi: Dúklagt, með sturtuklefa, hvítum tækjum og tengi fyrir þvottavél.
Svefnloft: Yfir hluta hússins, með aðgengi frá alrými.
Útgengi: Að vestan megin og einnig út á pall til suðausturs frá stofu. Timburpallur með heitum potti og útisturtu.
Geymsla & skúr: Geymsla er sunnan við húsið. Geymsluskúr á lóð getur fylgt.
Staðsetning
Sumarhúsið er staðsett neðan við Varmahlíð þar sem stutt er í þjónustu á borð við veitingasölu, verslun og sundlaug. Frábært útsýni er frá eigninni og umhverfið einkennist af náttúrufegurð og rólegu umhverfi.
Afhending
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Sækja HÉR söluyfirlit samstundis
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 / julius@landmark.is
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is
Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöf
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat