












Lýsing
Miklaborg kynnir nýtt á skrá: Sóleyjarimi 9, 112 Rvk, 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðin er 126,6 fm og geymslan 9,3 fm, samtals 135,9 fm. Til viðbótar við birta fm er stæði í bílageymslu og sameiginleg vagna- og hjólageymsla ásamt dekkjageymslu. Yfirbyggðar svalir.
Sóleyjarimi 9 er steinsteypt hús með 19 íbúðum fyrir 50 ára og eldri. Húsið er kjallari og 5 hæðir. Lyfta. Sérinngangur. Parket og flísar á gólfum. Snyrtileg og vel umgengin sameign. Mynddyrasími. Rótgróið hverfi þar sem stutt er í margvíslega þjónustu.
Opið hús föstudaginn 16. maí kl. 12:30-13:00, allir áhugasamir velkomnir.
Nánari lýsing: Þegar inn er komið tekur við forstofa, fataskápur. Tvö svefnherbergi, skápar í báðum. Stórt og gott baðherbergi með innréttingu, glugga og sturtuklefa. Þvottahús innan íbúðar m/vask og vinnuborði. Rúmgott eldhús með góðu skápaplássi ásamt flísum á milli efri og neðri skápa, borðkrókur. Stór stofa með útgengi út á yfirbyggðar svalir. Í heildina falleg íbúð með góðu innra skipulagi. Íbúðin er tóm og til afhendingar við kaupsamning.
Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf lgf., gustaf@miklaborg.is / 895-7205. Velkomið að panta tíma fyrir skoðun.