Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
parhús

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

953 Spánn - Costa Blanca

108.000.000 kr.

850.394 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F1021804

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
127 m²
svg
4 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
GLÆSILEG PARHÚS Á BESTA STAÐ Á FRÁBÆRUM GOLFVELLI

Glæsileg og vel hönnuð ný  parhús á tveimur hæðum í LIMA, nýju hverfi í örstuttu göngufæri frá klúbbhúsinu á Las Colinas golfvellinum, æfingasvæðinu og fyrsta teig. Góður einkagarður með einkasundlaug á móti suðri.  Frábær staðsetning alveg við golfvöllinn. Tennis- og boltavellir í næsta nágrenni og auk þess ráðgert að reisa þar lúxushótel, litla verslana- og þjónustu miðstöð og lítinn almenningsgarð þar sem hægt er að njóta útiveru. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.
Las Colinas golfvallasvæðið hefur verið valið besta golfsvæðið á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu og er svæðinu best lýst með orðunum "A World Apart" eða heimur út af fyrir sig.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.  adalheidur@spanareignir.is.  00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. 0034 615 112 869.
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. karl@spanareignir.is. 00354 777 4277. 


FRÁBÆRT SKIPULAG: á neðri hæð er svefnherbergis svíta með sérbaðherbergi og góðum fataskápum  og auk þess gestasnyrting. Rúmgóð og björt stofa, eldhús opið við borðstofu. Þvottahús inn af eldhúsi. Á efri hæð eru tvö svefnherbergi til viðbótar og baðherbergi. Tvennar svalir. Útgengi út á svalir frá svefnherbergjum.  Góð verönd er fyrir  framan við húsið og  stór sér garður með einkasundlaug og sólbaðsaðstöðu fylgir.

Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir í grónu umhverfi og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa einnig aðgang að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni, ca. 10 mín í ca. 10 mín akstursfjarlægð.
Örstutt göngufæri í Las Colinas klúbbhúsið, þar sem eru glæsilegir veitingastaðir og fallegt umhverfi, líkamsræktarstöð ofl.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca,  Las Ramblas, Campoamor og Villamartin.
Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða glæsilega eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum í fallegu umhverfi.

Verð frá 750.000 evrur (108.000.000ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.
(gengi 1Evra=145ISK.)

Góður kaupauki í boði. Hafið samband og kynnið ykkur málið.

EIN BESTA STAÐSETNINGIN Á LAS COLINAS GOLF SVÆÐINU.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Bein kaup frá  traustum og öruggum byggingaraðila.

Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum, ljósum og rafmagnstækjum gegn aukagjaldi.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: golf, sér garður, einkasundlaug, air con, bílastæði, BBQ,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.