Lýsing
** ODDASKÓGUR 1 OG HRAUNBREKKUR 9 - HÚSAFELLI ** Tvær Sumarbústaðalóðir (1.923 m² og 1.910 m² = 3.833 m²) eignarlóðit í landi Húsafells, Borgarbyggð.
Tengingar fyrir heitt og kalt vatn ásamt rafmagni á lóðarmörkum (stofngjald hefur Verið greitt vegna heitt og kalt vatn - ekki búið að greiða tengingargjöld). Greitt er fyrirvatnsnotkun samkvæmt gjaldskrá lóðareiganda.
Kvöð um greiðslu kr. 30.000 pr. ár vegna viðhalds á vegum o.fl. á svæðinu. Staðsett stutt frá nýja sumarbústaðasvæðinu í Húsafelli.
Fjarlægð frá Reykjavík er 130 kílómetrar. Öll helsta þjónusta er á staðnum, veitingastaður, strandblakvöllur, sundlaug og þjónustumiðstöð. Á svæðinu eru sérlega fallegar gönguleiðir og stutt í náttúruperlur eins og Langjökul, Arnarvatnsheiði, Hraunfossa, Barnafossa og einnig er á staðnum 9 holu glæsilegur golfvöllur. Á sumrin er kvöldskemmtun með varðeld og lifandi tónlist á laugardagskvöldum. Á svæðinu er glæsilegt tjaldstæði með aðgangi að sturtum, salerni, þvottahúsi og rafmagni. Húsafell er paradís fyrir sumarbústaðaeigendur jafn á sumrin og veturnar. Stutt upp á jökul, góðar gönguleiðir, sundlaug, golfvöllur, veitingarstaður, verslun o.fl. Þjónustustig stöðugt að aukast á svæðinu.
Hægt er að skoða vefsíðu Húsafells á http://www.husafell.is, þar eru upplýsingar um svæðið og dagskrána.
Allar upplýsingar í söluyfirlitinu eru fengnar hjá seljendum og úr opinberum gögnum.
************
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignsala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildar fasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, umboði, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Umsýslugjald kr. 49.600 (m/vsk).
4. Lántökugjald veðskuldabréfa samkvæmt gjaldskrá lánveitenda.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á