Upplýsingar
Byggt 1988
204,4 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
****EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA****
Hrafnkell og Atli á Lind kynna þetta glæsilega 204,4 fm einbýlishús á einni hæð með bílskúr og stórri grónni lóð sem er afar falleg og vel hirt. Húsið stendur innst í botnlanga með góðum garði og verönd fyrir framan húsið með heitum potti og sólskála á þessum vinsæla stað í Setberginu í Hafnarfirði.
Húsið er skráð 204,4 fm og skiptist þannig að húsið er 172,9 fm og bílskúrinn 31,5 fm og hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina.
Húsið er einstaklega vel skipulagt og skiptist í anddyri, 4 svefnherbergi, fataherbergi, mjög rúmgott eldhús, bjarta stofu með arinn, útgengi út á verönd sem snýr í suð-vestur með heitum potti og sólskála, þvottahús þar sem innangengt er í bílskúrinn, sjónvarpsstofu, glæsilegt baðherbergi og gestasnyrtingu. Innfeld lýsing í loftum víðast hvar í eigninni.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun hjá:
Hrafnkell P. H. Pálmason - Löggiltur fasteignasali / 690 8236 / hrafnkell@fastlind.is
Atli Karl Pálmason - Aðstoðarmaður fasteignasala / 662 4252 / atli@fastlind.is
Nánari lýsing:
Anddyrið er rúmgott með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Gestasnyrting með flísum á gólfi, upphengdu salerni og handlaug.
Svefnherbergi I með flísum á gólfi og góðum fataskáp með speglahurðum (8,8 fm).
Eldhús er einstakleg rúmgott og bjart með innréttingum frá Brúnás, steinn á borðum, viðarparketi og hiti í gólfi.
Borðstofa er björt með stórum glugga og viðarparketi á gólfi.
Sjónvarpsstofa með viðarparketi á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með viðarparketi (10,1 fm).
Fataherbergi þar við hlið, bjart með góðu fataplássi og flísum á gólfi (3,3 fm).
Svefnherbergi III með fataskáp og viðarparketi (8,5 fm).
Svefnherbergi IV með viðarparketi (7,8 fm).
Baðherbergi flísað í hólf og gólf, handklæðaofn, upphengd salerni, baðkar og sturta.
Stofa með þrepum niður, með viðarparketi á gólfi, arinn með flísum, hljóðvistarplötu í lofti og útgengi út á verönd.
Veröndin snýr í suð-vestur og er hin glæsilegasta, með heitum potti og sólskála.
Þvottahús með innréttingu fyrir vélar í vinnuhæð og innangengi út í bílskúr.
Bílskúr er rúmgóður og bjartur með flísum á gólfi (31,5 fm en er skráður 28,8 fm skv. fmr).
Einstök eign, afar vel staðsett innst inni í botnlanga, góð innkeyrsla með fallegum runnum og trjám. Stutt í alla helstu þjónustu; leikskóla, skóla og íþróttamiðstöð.
Eignin Kvistaberg 23 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 207-7260, birt stærð 204.4 fm.
Lind fasteignasala ehf kynnir eignina Kvistaberg 23, 221 Hafnarfjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 207-7260 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.