Opið hús: Arnarhlíð 1, 102 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 26. maí 2025 milli kl. 12:15 og kl. 12:45.
Lýsing
ARNARHLÍÐ 1 – GLÆSILEG OG BJÖRT ÞRIGGJA HERBERGJA ÍBÚÐ VIÐ HLÍÐARENDA Í REYKJAVÍK
Falleg og vönduð 81,0 fm þriggja herbergja íbúð í lyftuhúsi við Arnarhlíð 1 í Reykjavík. Íbúðin er með aukinni lofthæð, gólfsíðum gluggum og harðparketi á gólfum. Vel skipulögð eign með vönduðum innréttingum, góðu aðgengi og fernum sameiginlegum svölum. Húsið er staðsett rétt við íþróttasvæðið við Hlíðarenda og í göngufæri við miðbæinn og alla helstu þjónustu.
✅ Þriggja herbergja íbúð með aukinni lofthæð
✅ Harðparket á gólfum og gólfsíðir gluggar
✅ Eldhús með steinborðplötu, eyju og innbyggðum tækjum
✅ Baðherbergi með walk-in sturtu og upphengdu salerni
✅ Þvottahús innan íbúðar og geymsla bæði innan íbúðar og í kjallara
✅ Útgengi á einkasvalir í austur og aðgangur að sameiginlegum svölum í vestur og norður
Eignin skiptist í hol, alrými með eldhúsi, storfu og borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvotthús og geymslu innan íbúða og geymslu í kjallara.
Birt stærð íbúðar er 78,0 fm og geymslu er 3,0 fm, samtals 81,0 fm.
Nánari lýsing:
Anddyri og hol: Bjart rými með parketi á gólfi.
Alrými: Stofa, borðstofa og eldhús í opnu og björtu rými með gólfsíðum gluggum.
Eldhús: Hvít innrétting með góðu skáparými og skápum sem ná upp í loft. Steinborðplötur, innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur, bakaraofn í vinnuhæð. Eyja með keramik helluborði og lofthengdur gufugleypir.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt með upphengdu salerni, walk-in sturtu, baðinnréttingu og handklæðaofni.
Þvottahús: Sér rými innan íbúðar með flísum, innréttingu og vaski.
Geymsla: Geymsla fyrir innan þvottahús með föstum hillum og sérgeymsla í kjallara.
Svalir og sameign:
Útgengi úr íbúð á einkasvalir í austur. Fernar sameiginlegar svalir, tvær stórar svalir sem snúa í vestur með garðhúsgögnum og grilli, einar svalir sem snúa í austur og einar í norður.
Um húsið:
Húsið er staðsteypt á fjórum hæðum, einangrað að utan og klætt með sléttri álklæðningu ásamt liggjandi lerkitimburklæðningu á inndregnum svæðum, svo sem á séreignarsvölum og sameiginlegum svölum.
Staðsetning:
Arnarhlíð 1 er við Valsreitinn í Reykjavík – í nálægð við íþróttasvæðið við Hlíðarenda, skóla, miðbæinn og fjölbreytta þjónustu.
Sækja HÉR söluyfirlit samstundis
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 / julius@landmark.is
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is
Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöf
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat