Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
lóð

Illagil 13

805 Selfoss

100.000.000 kr.

Fasteignanúmer

F2345630

Fasteignamat

3.130.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
0 m²
svg
0 herb.

Lýsing

Illagil 15, 13, og 9, 805 Selfoss
Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna einstaka perlu á Þingvöllum, lóðirnar Illagil 15 og 13 ásamt lóðinni Illagili 9. Um er að ræða tvær samliggjandi lóðir 15 og 13 á einum fallegasta útsýnisstað við suðurenda Þingvallavatns þar sem þjógarðurinn, Skjaldbreið, Ármannsfell og Hrafnabjörg blasa við, auk lóðar 9 sem hentar sérstaklega vel fyrir gest- og bátahús . Aðkoma að svæðinu er í gegnum lokað bómuhlið og lóðunum fylgir aðgangur að Hestvík og réttur til bátahalds. 
Teikning, verkfræðihönnun, og byggingarréttur að stóru og glæsilegu húsi fylgir lóðunum, en gert er ráð fyrir að það sé reist á lóð 15 og er búið að grafa grunn á lóðinni til að koma því fyrir. Húsið er hannað af Arkiteó arkitektum og hefur hönnun þess miðað að því að hámarka útsýni frá því, þægindi og aðgengi um leið og það fellur að landinu á einstaklega smekklegan hátt. Hér eru á ferðinni einar síðustu útsýnislóðirnar við Þingvallavatn, í einungis 30 mínútna fjarlægð frá höfuðborginni. Lóðirnar seljast einungis allar saman. Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða á netfanginu hallgrimur@trausti.is.


Vefsíða með frekari upplýsingum er að finna hér

Nánari lýsing eignar:
Frá Reykjavík er ekið um Nesjavallaleið til austurs og þegar komið er inná Grafningsveg er ekið að afleggjara inn að Illagili þar sem lokað bómuhlið er inná svæðið.
Hliðið er opnað með fjarstýringu eða talnakóða.
Lóðirnar eru ofarlega í landinu og er kominn vegur að báðum ásamt neysluvatni og rafmagni að lóðarmörkum. 
Búið er að grafa fyrir grunni á lóð númer 15, leggja veg að grunninum og leiða vatn og rafmagn.
Illagil 13 er 7900 fm, Illagil 15 er 6100 fm og Illagil 9 er 6900 fm samkvæmt lóðarblaði. 

Hér er tækifæri fyrir fjársterka aðila að eignast einstakar lóðir við Þingvallavatn þar sem hægt er að reisa heillsárshús með öllum nútíma þægindum. Afar sjaldgæft er að lóðir komi í sölu á þessu svæði. Áhugasamir vinsamlega hafið samband við Hallgrím Hólmsteinsson í síma 896-6020 eða á netfanginu hallgrimur@trausti.is.
Forsendur söluyfirlits: 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík