Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
parhús

Ásland 4A

270 Mosfellsbær

108.900.000 kr.

794.891 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2082790

Fasteignamat

89.200.000 kr.

Brunabótamat

74.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1984
svg
137 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali  -  svanthor@fastmos.is eða 698-8555 -  Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040  - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 ** 

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og bjart 99 m2 parhús ásamt 26 m2 bílskúr á stórri lóð við Ásland 4A í Mosfellsbæ.
Eignin skiptist í 2-3 herbergi og er eitt þeirra með rislofti, forstofu, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Bílskúrinn með með stóru geymslulofti. Fyrir framan húsið er hellulagt bílaplan og er stór timburverönd og gróðurhúsi í bakgarði.  Eignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands 137 m2, þar af íbúð 99 m2, bílskúr 26 m2 og sólakáli 12 m2. Ekki er búið að byggja sólskálann.

Endurbætur samkvæmt upplýsingum frá seljanda: Nýlega var eldhús og baðherbergi endurnýjuð. Skipt var um gólfefni í stofu, eldhúsi, baðherbergi og gangi. Neysluvatnslagnir í íbúðarýminu endurnýjaðar. Flestir ofnar og ofnalagnir voru endurnýjaðar.


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent

Nánari lýsing:
Forstofa
er með flísum á gólfi. Geymsluloft er fyrir ofan forstofu.
Gangur/hol er með flísum á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 er rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi. Úr herberginu er stigi upp í risherbergi með parketi á gólfi.
Herbergi nr. 3 er í dag notað sem fataherbergi. Parket er á gólfi og gluggi. Hægt væri að nota herbergið sem barnaherbergi/vinnuherbergi.
Baðherbergi er flísalagt með sturtu og frístandandi baðkari. Þakgluggi er á baðherbergi sem gerir rýmið bjart og skemmtilegt. Baðherbergið hefur nýlega verið endurnýjað. 
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými með góðri lofthæð og flísum á gólfi. Eldhúsið hefur nýlega verið endurnýjað með nýjum tækjum. Tengi fyrir þvottavél er í eldhúsi . Stofan er björt og með útgengi út á timburverönd og stóran og góðan garð með litlu gróðurhúsi.
Bílskúr er flísalagður og með góðu geymslulofti. Bílaplan fyrir framan bílskúr og gönguleið að húsi er hellulögð með snjóbræðslu.

Verð kr. 108.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. sep. 2020
55.600.000 kr.
59.000.000 kr.
137 m²
430.657 kr.
8. nóv. 2011
24.000.000 kr.
32.000.000 kr.
137 m²
233.577 kr.
3. okt. 2007
26.100.000 kr.
33.300.000 kr.
137 m²
243.066 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ