Lýsing
Miklaborg kynnir: Glæsileg og vönduð borgaríbúð við hafnarbakkann – Austurhöfn , íbúð 308
Hér sameinast vönduð hönnun, metnaðarfull bygging og frábær staðsetning við Reykjavíkurhöfn – aðeins örfáum skrefum frá vinsælum veitingastöðum, Mathöllinni og iðandi mannlífi miðborgarinnar. Íbúðin er til suðvesturs og nýtur einstaklega góðrar dagsbirtu, með yfirbyggðum 6,4 fm viðarklæddum svölum sem mynda hlýlegt og skjólgott útisvæði. Innra rýmið einkennist af skýrri hönnun og vönduðum frágangi – þar sem gengið er inn í rúmgóða forstofu með fataskápum, glæsilegt baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu, og samliggjandi eldhús og stofu með útgengi á svalir. Svefnherbergið er bjart og aðgengilegt beint frá stofunni. Austurhöfn státar einnig af einstaklega fallegri og skjólgóðri sameign, þar sem lokaður garður myndar rólegt athvarf innan þessa líflega borgarumhverfis. Þetta er íbúðin fyrir þá sem kunna að meta gæði, hönnun og einstaka staðsetningu – þar sem borgin og hafið mætast í einni óviðjafnanlegri heild.
Bókið einkaskoðun hjá Jóni Rafni fasteignasala í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is
Íbúð 308 við Austurhöfn státar ekki aðeins af óviðjafnanlegri staðsetningu heldur einnig innra rými sem ber vott um einstaka fagurfræði og gæðavitund. Hér hefur hver einasta smáhönnun verið útfærð af nákvæmni og smekk – þar sem engu var til sparað.
Innréttingarnar eru sérsmíðaðar frá hinu virta ítalska handverkshúsi Gili Creations og spónlagðar með amerískri hnotu. Efri skápar í eldhúsi eru svartbæsaðir og mynda dýpt og glæsileika í rýminu. Kvarts borðplötur prýða bæði eldhús og baðherbergi og undirstrika þá hreinleika og endingu sem einkennir efnisvalið. Eldunartækin eru af bestu gerð – með Miele bökunarofni, helluborði og innbyggðri uppþvottavél, á meðan innbyggður ísskápur frá Liebherr bætir punktinum yfir i-ið.
Á baðherberginu blandast svartir og gráir tónar við hlýlega hnotuviðarinnréttingu og smekkleg blöndunartæki frá þýska gæðaframleiðandanum Dornbracht. Hér mætast efnislegur lúxus og stílhrein nútímaleg hönnun í hnökralausri heild.
Íbúðin sjálf er 40,8 fm og til viðbótar fylgir 9,6 fm sérgeymsla í kjallara. Að auki eru margar smá útfærslur sem gleðja og gera daglegt líf einfaldara – svo sem innbyggð lýsing í fataskápum og miðlægt ljósakerfi með einum rofa sem slökkvir á öllu. Innihurðirnar eru gerðalausar, spónlagðar með hnotu og gera mikið fyrir heildarásýnd rýmisins.
Það er gólfhiti í allri íbúðinni, auk þess sem aukin lofthæð skapar rýmistilfinningu og bætir andrúmsloftið. Hægt er að leigja stæði í bílakjöllurum Hörpu eða Hafnartorgs, og innangengt er þaðan í stigagang hússins.
Þessi nett, smekklega skipulagða íbúð er alger perla í miðju borgarlífsins – og sameinar það sem margir leita að: stíl, staðsetningu og yfirvegaðan lúxus.
Nánari upplýsingar veitir:
Jón Rafn fasteignasali í síma 6955520 eða jon@miklaborg.is