Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
einbýlishús

Þrastarhöfði 16

270 Mosfellsbær

215.900.000 kr.

864.984 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2283501

Fasteignamat

153.950.000 kr.

Brunabótamat

124.500.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2006
svg
249,6 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

** Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali -  svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög glæsilegt 249,6 m2 einbýlishús á einni hæð á vinsælum stað í rólegum botnlanga við Þrastarhöfða 16 rétt við golfvöllinn í Mosfellsbæ. Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega. Húsið er allt hið glæsilegasta. Mjög mikil lofthæð,3,4 metrar í alrýmum og 2,85 metrar í herbergjum og bílskúr. Sérsmíðaðar innréttingar. Gólfhitakerfi er í öllu húsinu.  Húsið er klætt að utan með flísum og við. Glæsileg afgirt lóð með hellulögn og timburveröndum. Heitur pottur, yfirbyggð eldunaraðstaða og stór geymsluskúr. Stórt hellulagt bílalstæði með snjóbræðslu. Eignin er skráð 249,6 m2, þar af einbýli 205,0 m2 og bílskúr 44,6 m2.
Húsið skiptist í fjögur herbergi og þar af er hjónaherbergi með fataherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, bílskúr, forstofu, sjónvarpshol, eldhús, stofu og borðstofu.
Vinsæl staðsetning, stutt í golfvöllinn, Lágafellsskóla, leikskólann Hulduberg, Lágafellsslaug og World Class. 

Miklar endurbætur voru gerðar nýlega og sá Rut Káradóttir innanhússarkitekt um hönnun á þeim. Sérsmíðaðar og vandaðar innréttingar með miklu skápa- og vinnuplássi eru í flestum rýmum. Vönduð tæki eru í eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergi. Innihurðir eru hækkaðar og sérsmíðaðar. Í öllum svefnherbergjum eru sérsmíðaðar innréttingar með LED lýsingu og fataskápar með góðu geymsluplássi og LED lýsingu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent


Nánari lýsing:
Forstofa er með stórum fataskápum og flísum á gólfi.
Gestasnyrting er inn af forstofu.
Svefnherbergi nr. 1 er inn af forstofu með sérsmíðuðum innréttingum, fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 (Hjónaherbergi) er með sérsmíðuðum innréttingum og parketi á gólfi. Inn af hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi. Úr hjónaherbergi er útgengt út á verönd í bakgarði.
Svefnherbergi nr. 3 er með sérsmíðuðum innréttingum, fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er með sérsmíðuðum innréttingum, fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi er mjög rúmgott, flísalagt, með vegghengdu salerni, baðkari, rúmgóðri sturtu með innbyggðum tækjum stórri sérsmíðaðri innréttingu og stórum speglaskápum. Gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús er með rúmgott með rúmgóðri sérsmíðaðri innréttingu með miklu skápaplássi, þar sem er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og tveimur handklæðaofnum. Flísar á gólfi. Úr þvottahúsi er innangengt inn í bílskúrinn. Úr þvottahúsi er útgengt út í garð.
Sjónvarpshol er rúmgott með niðurteknu sérhönnuðu lofti til að bæta hljóðvist og parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa er í björtu opnu rými með mikilli lofthæð og niðurteknu sérhönnuðu lofti með lýsingu og til að bæta hljóðvist, með parketi á gólfi. Stórir gluggar og útgengi út á verönd í suðurátt.
Eldhús er með stórri sérsmíðaðri innréttingu með miklu vinnu- og skápaplássi, vönduð eldhústæki, flísar á gólfi. Borðplata úr kvarts. Úr eldhúsi er opið inn í borðstofu.
Bílskúr er rúmgóður með flísalögðu gólfi og gólfhita, rafmagns bílskúrshurðaropnara, góðu geymslulofti og góðum frágangi um inntakslagnir.

Verð. kr. 215.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. jún. 2009
50.200.000 kr.
58.400.000 kr.
249.6 m²
233.974 kr.
31. jan. 2007
31.880.000 kr.
44.300.000 kr.
249.6 m²
177.484 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ