Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson
Loftur Erlingsson
Halldóra Kristín Ágústsdóttir
Steindór Guðmundsson
Vista
parhús

Skólatún 12

840 Laugarvatn

78.300.000 kr.

481.846 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2526839

Fasteignamat

63.500.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2023
svg
162,5 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali, ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu Skólatún 12 sem er nýtt fjögurra herbergja parhús í nýju íbúðahverfi á Laugarvatni.  Húsið er á einni hæð, byggt úr timbri, klætt að utan með lituðu bárujárni, bárujárn á þaki. Húsið er einstaklega viðhaldslétt að utan. Húsið er 162,5 fm að stærð, þar af sambyggður bílskúr 46,0 fm. Húsið er fullbúið og tilbúið til afhendingar strax við kaupsamning.  Hönnun hússins tekur m.a. mið af því að viðhald sé í lágmarki og innra skipulag sett upp með það að markmiði að nýta sem best stærð íbúðar.  Húsið er í göngufæri við skóla og alla þjónustu á Laugarvatni.    
Lóð er þökulögð með mulningi í plani og sorpgeymsla er úr forsteyptri einingu.
********** Uppítaka á ódýrari eign skoðuð **********


Nánari lýsing:
Húsið telur þrjú svefnherbergi öll með fataskápum, andyri með stórum fataskáp og speglahurð, stofu- borðstofu og eldhúsi í opnu rými, baðherbergi, gesta salerni og þvottahúsi en úr því er innangengt út í rúmgóðan bílskúr.
Stór eldhúsinnrétting, borðplötur með marmaraáferð og eyja. Vönduð heimilistæki og innbyggður ísskápur og uppþvottavél.  Snyrtilegt og rúmgott baðherbergi með "walk inn" sturtu með glervegg, upphengdu wc, handklæðaofni, innréttingu og spegli með óbeinni lýsingu.  Þvottahús með innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara í vinnsluhæð.  Bílskúrsgólf er Epoxi málað og innkeyrsluhurð sem einnig er gönguhurð.
Húsið er klætt að utan með grárri báru og járn er á þaki.   Gluggar eru vandaðir frá Gluggatækni.  Hitalagnir eru steyptar í gólfplötu og húsið því kynnt með svæðaskiptum gólfhita.  Lóð er þökulögð og drenmöl í bílaplani sem er mjög stórt.  
Virkilega spennandi eign á fínum stað í vaxandi bæjarfélagi.

Laugarvatn er fallegt þorp sem stendur við samnefnt vatn. Vel staðsett, í Bláskógabyggð á "Gullna hringnum".  Fagurt útsýni og stutt í margar af fallegustu náttúruperlum Suðurlands s.s. Gullfoss, Geysi, Þingvelli o.fl.  Á Laugarvatni er leikskóli, grunnskóli og menntaskóli. Þar er verslun, veitingastaðir, Fontana o.fl. Margvísleg afþreying í ferðaþjónustu í næsta nágrenni. Ca 30 mín akstur á Selfoss og 50 mín í Mosfellsbæ.

Bókið skoðun - Sýni samdægurs.

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is 

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       

                                                                                                               
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
23. maí. 2024
39.250.000 kr.
55.000.000 kr.
10102 m²
5.444 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
HÚS fasteignasala

HÚS fasteignasala

Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Hlíðasmára 2 Kópavogi