Lýsing
Miklaborg kynnir: Engihlíð 12, 105 Reykjavík. 3ja herbergja 75,7 fm íbúð á jarðhæð/kjallara í Hlíðunum sem búið er að endurnýja mikið undanfarið.
Góð staðsetning í rótgrónu hverfi. Húsið nýlega steinað ásamt uppsetningu á brunni með dælu fyrir aftan hús. Gólfhiti. Flísar á gólfum. Sameiginlegt þvottahús á sömu hæð. Lítil geymsla innan íbúðar.
Opið hús laugardaginn 31. maí kl. 12:15-13:00, allir áhugasamir velkomnir / Gústaf Adolf lg. gustaf@miklaborg.is / 895-7205.
Nánari lýsing: Gengið niður steyptar tröppur. Forstofa. Komið inní hol. Stofa og borðstofa saman í opnu rými. Búið að opna inní endurnýjað eldhús. Góð tæki, innbyggð uppþvottavél fylgir. Flísar á milli efri og neðri skápa. Tvö rúmgóð svefnherbergi ásamt endurnýjuðu baðherbergi.
Í heildina notaleg íbúð með góðu innra skipulagi. Stutt í margvíslega þjónustu, skóla, leikskóla og fl. Íbúðin er til afhendingar við kaupsamning.
Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf lgf., gustaf@miklaborg.is / 895-7205.