Upplýsingar
161340,1 m²
5 herb.
1 baðherb.
Þvottahús
Lýsing
Góð jörð sem er nefnd Tjörn og er við þorpið Þykkvabæ í Rangárþingi ytra, u.þ.b.. 75-80 mín. akstursleið frá Rvk. (116 km). Jörðin hefur síðustu ár verið nýtt til hrossaræktar. Jörðin er um 53,5 hektarar að stærð (verið að skrá endanlega stærð hjá yfirvöldum) og skv. núverandi upplýsingum hjá HMS eru þar af um 16 hektarar ræktaðir.
Mannvirki á jörðinni eru alls 356,2 fm skv. HMS, þar af er reisulegt einbýlishús sem er 170 fm að stærð, jarðhæð sem er 119,3 fm og efri hæð/ris sem er 50,7 fm, en gólfflöturinn er stærri því þó nokkrir fm eru undir súð. Endurbætur á íbúðarhúsinu hafa staðið yfir undanfarin ár og hefur þak, gluggar/gler, raflagnir, vatnslagnir og rotþró hafa verið endurnýjuð. Íbúðarhúsið þarfnast enn frekari endurbóta að utan en endurbætur að innan hafa ekki hafist nema að litlu leyti. Vélageymsla er skráð 231,3 fm að stærð sem hefur verið endurnýjuð að mestu (þak, klæðning, gluggar og hurðir endurnýjað og gólf steypt). Vélageymslan skiptist í tvö rými og eru tvær innkeyrsluhurðir. Umhverfis íbúðarhús og vélageymslu er fallegt tún. Undanfarin ár hafa hross verið ræktuð á hluta jarðarinnar sem hafa verið úti allt árið um kring en góð hrossarétt og hrossagerði er á jörðinni. Allar girðingar og hlið hafa verið endurnýjuð og er rafmagn í hluta girðinga. Jörðin býður upp á mikla möguleika í hrossarækt en ekki síður í ferðamennsku. Jörðinni fylgir hlutdeild í veiðisvæði Hólsár, vesturbakka einu gjöfulasta veiðisvæði landsins sem er leigt út.
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is