Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Árni Björn Kristjánsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2008
svg
95,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Laus strax

Lýsing

Palsson Fasteignasala kynnir:

Stórglæsilegt og nýlegt 74 fm heilsárshús ásamt um 20fm geymslu í Grímsnesi. Eignin skiptist í anddyri , stofu, borðstofu og eldhús með útgengi á stóran pall. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu ásamt baðherbergi með sturtu. Geymsla með flísum á gólfi og góðu skápaplássi. Lóðin er 6.900m2 eignalóð á fallegum útsýnisstað og húsið er kynt með hitaveitu.
  • Geymsluskúr 22fm við hlið húsins
  • Geymsluskúr við innkeyrslu á lóð
  • Heiturpottur og rúmgóður pallur
  • Heitt & kalt vatn
  • Eignalóð og forsteypt
Syðri Brú í Sólbrekkulandi er vinsæll staður með 9 holu golfvöll í 2-3mín fjarlægð í bíl. Eignin er ca. 50 mín í akstri frá Reykjavík.
Birt stærð samkv þjóðskrá Íslands er 73,7m2

Smelltu á myndband til að sjá staðsetningu

Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í síma nr: 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

Nánari lýsing:
Komið er inní anddyri með fataskáp.
Þaðan er gengið inn á gang sem liggur að samliggjandi stofu, eldhúsi og borðstofu. Parket eru á gólfi. Stofa er með fallegu útsýni og útgengt er á sólríkan pall.
Eldhús er með hvítri háglans innréttingu, helluborði, bakarofni, ísskáp og uppþvottavél. 
Svefnherbergin eru þrjú með fataskápum í einu þeirra og parketi á gólfi.
Baðherbergi  með innréttingu, útdraganlegum skúfum, sturtu með glerhurð, upphengdu salerni og flísalagt.   
Geymsla er með sér inngangi. Flísar á gólfi.  
Geymslu / bílskúr er óskráð samkv. þjóðskrá íslands. Hefur margar nýtingamöguleika á borð við gesthús
Með eigninni er rúmgóður pallur sem lokaður er að hluta með timbri og gleri sem veitir gott skjól ásamt heitum potti.
Geymsluskúr, ca 12m2,  við innkeyrslu er nýttur fyrir lítinn slátturtraktor ásamt garðáhöldum og fleira en skúrinn er kaldur
Teikningar af húsi má nálgast hjá fasteignasölunni
Búið er að gróðursetja mikið á lóðinni, húsið stendur 6.900m2 eignalóð.
Nánasta umhverfi býður upp á mikla fjölbreytni í útivist og stutt í alla helstu þjónustu. Sem dæmi er göngufæri í Úlfljótsvatn
Háhraða net er í bústaðnum

EIGN SEM ER ÞESS VIRÐI AÐ SKOÐA

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
9. feb. 2018
21.450.000 kr.
32.500.000 kr.
73.7 m²
440.977 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík