Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Borga Harðardóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Vista
fjölbýlishús

DALAHRAUN 15C

810 Hveragerði

64.900.000 kr.

609.962 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2515315

Fasteignamat

62.650.000 kr.

Brunabótamat

60.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
106,4 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Valborg fasteignasala kynnir fallega íbúð á efri hæð við Dalahraun 15, 810 Hveragerði.
Nýlega rúmgóð þriggja herbergja íbúð á annarri og efstu hæð.
Eignin er samtals 106,4 m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, borðstofu/stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Íbúðin sjálf er 98,2 m² og sér geymsla á neðri hæð er 8,2 m². Sérinngangur er í íbúðina. Suðursvalir utan við stofu eru 9 m².
Íbúðin er nýju, skemmtilegu hverfi í Kambalandi, efst og vestast í bæjarfélaginu. Stutt er í óspilta náttúru með fallegum göngu- og hjólaleiðum.
** Fasteignamat næsta árs er áætlað kr. 66.950.000 **


Sjá staðsetningu hér:

Upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861 6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.


Nánari lýsing:
Anddyri
er með tvöföldum fataskáp.
Alrými samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Í eldhúsi er viðarlituð innrétting með steinborðplötu, innbyggðum kæli/frysti og innbyggðri uppþvottavél. Þar er stór eyja með ofni, helluborði, loftháfi og góðu skápa- og borðplássi. Úr stofu/borðstofu er útgengt út á 9 m² svalir er vísar til suðurs. Samkvæmt upprunalegum teikningum er gert ráð fyrir hjónaherbergi þar sem hluti stofunnar er í dag. Auðvelt er að bæta þar við þriðja svefnherberginu.
Baðherbergi er flísalagt. Viðarlituð innrétting með handlaug, góðu skápaplássi, upphengt wc, handklæðaofn og rúmgóð sturta. Á baðherbergi er gert ráð þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Hjónaherbergi er extra rúmgott en tvö herbergi hafa verið sameinuð í eitt. Bjart rými með sexföldum fataskáp. Gluggar til norðurs.
Svefnherberg með skúffuskáp. Gluggar til norðurs.
Sérinngangur er í íbúðina.
Eignin er parketlögð fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt.
Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla

Húsið er byggt úr steinsteypu, einangrað og klætt að utan með álklæðningu. Svalir og gangar eru steyptir. Snjóbræðsla í hellulagðri gangstétt fyrir framan hús. Dalahraun 15 er fimm íbúða tvílyft hús. 

Aðrar eignir sem við seljum má sjá hér.

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
3. des. 2021
18.000.000 kr.
49.900.000 kr.
106.4 m²
468.985 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Valborg fasteignasala

Valborg fasteignasala

Nóatún 17, 105 Reykjavík
phone