Lýsing
Endaraðhús á einni hæð, gott aðgengi fyrir hreyfihamlaða, vinsæll staður, sér bílastæði í bílakjallara.
Aukin lofthæð, gólfsíðir gluggar, timburverönd,
Sameiginlegt bílaþvottaplan og samkomusalur, stutt er í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Húsið er timburhús, byggt árið 2008. Eignin skiptist í íbúð, 114.9 m² að stærð og geymslu í sameign, 7.7 m² að stærð, samtals 122.6 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymsla.
Í bílakjallara: Lyfta, sér bílastæði með lögn fyrir hleðslustöð, sér geymsla og bílaþvottaaðstaða.
Í Turni: Setustofa og fullbúinn veislusalur fyrir 50 manns, lyfta.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 483 5800 |
Nánari lýsing:
Anddyri með fjórföldum fataskáp.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, lofthæð u.þ.b. 3,6 metrar þar sem hæðst er. Gengið er frá stofu út á timburverönd (vestur), síðir gluggar með sólarfilmu og felligardínum.
Eldhús, eyja með stálvaski, gert er ráð fyrir uppþvottavél í eyju, ofn í vinnuhæð, háfur, helluborð, tækin eru frá AEG. Siemens ísskápur fylgir.
Svefnherbergi eru þrjú, í hjónaherbergi er áttfaldur fataskápur, tvöfaldur fataskápur er í öðru minna herberginu en einfaldur í hinu.
Baðherbergi er flísalagt að hluta, vaskinnrétting, handklæðaskápur, upphengt salerni, sturta og handklæðaofn. Aðstaða fyrir þvottavél/þurrkara er inni á baðherbergi.
Geymsla innan íbúðar, gólfhitakista, skápar.
Geymsla og bílastæði í kjallara.
Rennihurðir eru að alrými, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi og geymslu. Gólfefni: Flæðandi harðparket er á alrými, gangi og svefnherbergjum. Flísar á forstofu, baðherbergi og geymslu í íbúð.
Gólfhiti er í eigninni, Danfoss hitastýringar á veggjum. Reglulegt viðhald á hitagrind hefur verið framkvæmt af Súperlögnum ehf.
Sameiginleg aðstaða er fyrir íbúa kjarnans í sér húsi/turni sem staðsett er fyrir miðjum kjarnanum. Þar er samkomusalur og setustofa með aðgengi fyrir hreyfihamlaða og lyfta niður í bílakjallara.
Hverri íbúð fylgir sér bílastæði í bílageymslu og sér geymsla sem staðsett er fyrir framan bílastæðið. Sameiginlegt bílaþvottastæði er í bílageymslu.
Samningur er við ON um leigu á hleðslustöðvum og þjónustu á rafhleðslukerfi.
Smyrlaheiði 37 - 41 er fimm íbúða raðhús, timburhús klætt að utan með liggjandi báruálsklæðingu, viðarklæðning er á göflum og við inngang, dúkur á þaki.
Hellulagt er fyrir framan hús, snjóbræðsla í hellulögn.
Samkvæmt eignaskiptasamningi tilheyrir íbúðinni 35 m² sérafnotaflötur á lóð. Timburverönd, u.þ.b. 30 m² að stærð, með skjólveggjum er við húsið að vestanverðu, verönd nær að lóðarmörkum.
Steypt sorptunnugeymsla fyrir tvær sorptunnur er framan við hús.
Skipt var um glugga og gler í hjónaherbergi 2022, Vörðufell ehf, sá um smíði og skipti á glugga. Laus rafmagnspottur á verönd fylgir ekki.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 221-0213.
Stærð: Íbúð 114.9 m². Geymsla 7.7 m². Samtals 122.6 m².
Brunabótamat: 63.950.000 kr.
Fasteignamat: 69.000.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 75.900.000 kr.
Byggingarár: Íbúð 2008. Geymsla 2007.
Byggingarefni: Timbur.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Kristín Rós Magnadóttir, löggiltur fasteignasali / lögfræðingur - kristin@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali - silla@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala