Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2020
89,4 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 3. júní 2025
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Hallgerðargata 3, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 3. júní 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Borg fasteignasala og María Mjöll kynna Hallgerðargötu 3 - eign á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi við Kirkjusand byggt 2020. Fallega innréttuð íbúð - 89,4 m2.
Skipulag: Anddyri, baðherbergi, stofa, eldhús, tvö svefnherbergi og sér geymsla í sameign.
Nánari lýsing: Komið er inn í anddyri með harðparketi á gólfi og fataskáp, þar á vinstri hönd er baðherbergi. Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum, upphengt salerni, baðinnrétting með spegli fyrir ofan, walk-in sturta og handklæðaofn. Inná baðherbergi er innrétting sem rúmar þvottavél og þurrkara. Stofa/borðstofa eru í rúmgóðu alrými með útgengi út á svalir, harðparket á gólfi. Eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur.
Hjónaherbergi er með harðparketi á gólfi og fataskápum, barnaherbergi með harðparketi á gólfi.
Annað: Sér geymsla fylgir eigninni í sameign hússins, undir húsinu er bílastæðakjallari sem eigendur geta nýtt sér gegn vægu gjaldi, hvort heldur sem er til lengri eða skemmri tíma. Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla
Nánari upplýsingar veitir: María Mjöll Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8663934
eða maria@fastborg.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. feb. 2021
63.950.000 kr.
55.900.000 kr.
89.4 m²
625.280 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025