Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 2021
svg
183,6 m²
svg
5 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Domusnova fasteignasala kynna: 

Mjög vandað og viðhaldslétt sumarhús á eignarlóð með útsýni í Grímsnesi.

Um er að ræða aðalhús, gestahús, stóra verönd með heitum potti, saunahús, geymsluskúr, stórt bílastæði.

Húsið tekur auðveldlega 10-12 manns í gistingu í rúmum og svefnsófum.

Eignin er eingöngu sýnd í einkaskoðun, bókið skoðun hjá Hrannari í síma 899 0720 eða á hrannar@domusnova.is

Húsið er allt búið fallegri innfelldri lýsingu með dimmer í öllum slökkvurum.

Gólfsíðir gluggar eru víða til að hámarka nýtingu birtu og fanga fallegt útsýni úr eigninni.

Eignin stendur á 9000 fm eignarlóð á lokuðu frístundahúsasvæði (símahlið) með fallegu útsýni til suðurs, vesturs og fjalla í norðri.

Mjög öflug sumarhúsafélag er á svæðinu og nýverið búið að leggja bundið slitlag á aðalveg innan svæðis.

Nánari lýsing - aðalhús:
Forstofa - komið er inn í góða forstofu með náttúruflísum á gólfi og fatahengi.

Suðurgangur/Hjónasvíta - mjög rúmgott hjónaherbergi (12,1 fm) með fataherbergi innaf, harðparket á gólfi og útgengt á stóra verönd með miklu útsýni úr hjónaherberginu.
Suðurgangur/Baðherbergi - náttúruflísar á gólfi og veggjum í sturtu, "Walk-in" sturta, upphengt salerni og falleg innrétting með vaski. Af gangi framan baðherbergis er útgengt á veröndina og þjónustar fólk úr heita pottinum.
Suðurgangur/Aukaherbergi - lítið aukaherbergi (6 fm) með harðparketi á gólfi.

Eldhús - er mjög rúmgott, með stórri innréttingu, mikið geymslurými, innbyggð uppþvottavél og ísskápur, stór eyja með miklu vinnurými, span helluborð í eyju, bakaraofn í vinnuhæð, öll tæki mjög vönduð.
Borðstofa - stendur miðsvæðis í mjög björtu rými og er útsýni úr henni til allra átta einstakt, útgengt út á verönd og harðparket á gólfi.
Stofa - stendur neðar framst (vesturhluta) aðalrýmis, gengið niður tröppur í setustofuna með fallegu útsýni um gólfsíða útsýnisglugga móti vestri og suðri.

Norðurgangur/Fjölskyldusvíta - búið að sameina tvö herbergi frá teikningu í eitt stórt fjölskylduherbergi, harðparket á gólfi.
Norðurgangur/Baðherbergi - náttúruflísar á gólfi og veggjum í sturtu, "Walk-in" sturta, upphengt salerni og falleg innrétting með vaski.

Mjög stór verönd er í skjólsælu horni móti vestri og suðri. Á veröndinni er stór rafmagnspottur, grillskýli, saunahús (6 fm) með mögnuðum útsýnisglugga. Mikið rými til að sitja og finna sér skjól, hvernig sem blæs.

Við aðkomu er mjög stórt bílastæði og eigendur búnir að útbúa flotta aðstöðu þar fyrir morgunkaffið á skjólsælli verönd. Einnig er þar bæði gestahús (37,6 fm) og geymslu- og vinnuskúr (12-13 fm).

Nánari lýsing - Gestahús:
Gestahúsið er í dag lítil tveggja herbergja íbúð þótt í upphafi hafi eigendur sett stóra hurð á gaflinn til að eiga möguleika á að geyma golfbílinn inni.
Við inngang í aðalrými er baðherbergi með "Walk-in" sturtu, innréttingu með vaski og upphengdu salerni.
Í aðalrými er eldhúsinnrétting með góðu bekkjarými, vaski, liltu helluborði og innbyggðum litlum ísskáp.
Í sama rými er stofuhorn með svefnsófa, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi er mjög rúmgott og innaf því er geymsla og inntaksrými fyrir kyndingu og 200 lítra hitakút, sem sér allri eigninni fyrir nægu vatni.

Lóðin og landið í kring gefur gott næði við húsið og er t.a.m. nágranninn til suðurs með aukalóð tóma milli húsa.

Bæði hús standa á sökkli og steyptri plötu, hús og palllur allt klætt með viðhaldsléttu lerki harðvið að utan, náttúruflísum að innan og harðparket á gólfum frá Birgisson.

Eignin er með mjög öflugt rafmagnshitunarkerfi, hiti er í öllum gólfum, hitastýring er fyrir hvert rými.

Hægt er að taka inn hitaveitu, kjósi nýr eigandi það og eru allar lagnir til staðar til að tengja hitaveitu inn á húsið.

Eignin er einstaklega vel staðsett, stutt í alla afþreyingu, golfvelli, sund, verslun og þjónustu. Selfoss er um 10-15 min akstursfjarlægð og ekki nema 45 mín akstur frá höfuðborgarsvæðinu.

Upplýsingar gefur: 
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali
Sími: 899 0720
Netfang: hrannar@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone