Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
hæð

Hörpugata 13

102 Reykjavík

76.500.000 kr.

962.264 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2029120

Fasteignamat

56.600.000 kr.

Brunabótamat

39.350.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1932
svg
79,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur
Opið hús: 3. júní 2025 kl. 17:30 til 18:00

Lýsing

** Opið hús þriðjudaginn 3. júní frá kl. 17:30 til 18:00 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 ** 

FASTMOS kynnir: Falleg sérhæð á annarri hæð í þríbýlishúsi með sér inngangi á vinsælum stað í Skerjafirðinum, miðsvæðis í Reykjavík. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni. Eignin er skráð 79,5 m2, þar af íbúð 63 m2, þakrými 12,9 og stigi 3,6 m2. Íbúðin skiptist í forstofu,  stiga, gang, stofu, borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi og þakrými/ris. Gólfflötur í risi er töluvert stærri en skráðir fermetrar eða rúmlega 40 m2. Stutt er í alla helstu þjónustu, Háskóla, miðbæ Reykjavíkur, vinsælar gönguleiðir og ýmsar útivistarperlur. Fallegt útsýni yfir Skerjafjörð, Suðurnes og til Esju.

Endurbætur samkvæmt seljanda: 2000: Húsið var bárujárnsklætt. Rennur endurnýjaðar og skipt um nokkrar rúður í íbúðinni. Einu til tveimur árum síðar var skipulagi íbúðar breytt og þakrými gert upp. 2015: Eldhúsi breytt og endurnýjað að hluta, íbúðin máluð og plankaparket í eldhúsi, borðstofu og stofu pússað. 2017: Baðherbergi breytt og endurnýjað. Vatns- og fráveitulagnir í húsinu endurnýjaðar vegna framkvæmda á öllum hæðum. Nýtt dren kringum allt húsið og brunnar. 2018: Fjárfest í viðarruslatunnuhúsum sem eru við inngang í garðinn. 2020: Húsið málað.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
 
Nánari lýsing:
Forstofa er með fatahengi. Úr forstofu er stigi upp í íbúðina.
Gangur er með parketi á gólfi.
Stofa er með gólfjölum á gólfi.
Borðstofa er með gólffjölum á gólfi. Úr borðstofu er stigi upp í ris.
Eldhús er með gólffjölum á gólfi, eldavél og fallegri innréttingu. Þvottavél er í eldhúsinnréttingu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með salerni, handlaug, handklæðaofni og sturtu.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er inn af gangi með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er inn af stofu með parketi á gólfi. Hægt að opna milli svefnherbergis 1 og svefnherbergis.
Ris er með parketi á gólfi.

Verð kr. 76.500.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ