Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Marta Jónsdóttir
Vista
svg

644

svg

548  Skoðendur

svg

Skráð  30. maí. 2025

fjölbýlishús

Kristnibraut 79

113 Reykjavík

73.900.000 kr.

698.488 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2260536

Fasteignamat

63.450.000 kr.

Brunabótamat

53.200.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2002
svg
105,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Sunna fasteignasala ehf., Jasmín Erla Ingadóttir, lfs. og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., kynna Kristnibraut 79, 113 Reykjavík.
 
Um er að ræða vel skipulagða og bjarta þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi við Kristnibraut 79 í Grafarholti. 
Eignin er skráð 105,8 fm, þar af er íbúðin 94,7 fm og geymslu í sameign er 11,1 fm.

Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Tvö rúmgóð svefnherbergi, bæði með parketi á gólfi og góðum fataskápum. Í hjónaherbergi er þrefaldur fataskápur.
Sjónvarpshol sem býður upp á fjölbreytta notkun.
Björt stofa/borðstofa með parketi á gólfi og útgengi út á skjólgóða timburverönd með skjólveggjum til vesturs. Hægt er að ganga af veröndinni út um hlið í sameiginlegan garð þar sem m.a. eru leiktæki fyri börn.
Eldhús með flísalagt gólf, snyrtilega innréttingu, AEG bakaraofn í vinnuhæð og gott skápa- og vinnupláss.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum nánast upp í loft, innrétting með efri og neðri skáp, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni og opnanlegur gluggi.
Sérþvottahús er innan íbúðar.

Sameignin er mjög snyrtileg, með lyftu. Þar er góð sameiginleg hjólageymsla og gott húsfélag. Fjöldi bílastæða og gott aðgengi. 
Húsið er staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í göngufæri við leikskóla, skóla og almenningssamgöngur.

Húsið er byggt af Byggingarfélagi Gunnars og Gylfa (BYGG) árið 2002.

Nánari upplýsingar veita Jasmín Erla Ingadóttir, lfs. í síma 772-6979, og netfanginu jasmin@sunnafast.is, og Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs., í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is. 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

img
Marta Jónsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Sunna fasteignasala
Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík
img

Marta Jónsdóttir

Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. sep. 2022
45.800.000 kr.
63.100.000 kr.
105.8 m²
596.408 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Sunna fasteignasala

Sunna fasteignasala

Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík

Marta Jónsdóttir

Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík