Opið hús: Drápuhlíð 38, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 5. júní 2025 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Sérlega fallega og mikið endurnýjaða 5 herbergja íbúð á 2 hæð í góðu fjölbýlishúsi í Hlíðarhverfinu. Birt stærð er samtals 117.2 fm þar af er íbúð 113.3 fm og geymsla 3.9 fm. Íbúðin og húsið hafa verið töluvert endurnýjuð og lagfærð að innan sem utan undanfarin ár eins og sjá má á upptalningunni hér fyrir neðan.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla og leikskólar. Í göngufæri er skóli Ísaks Jónssonar, Hlíðaskóli, Menntaskólinn við Hamrahlíð, Verslunarskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Kringlan. Stutt er í útivistarsvæðin Klambratún, Öskjuhlíð og Nauthólsvík.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX
Skipulag eignar: Íbúðin skiptist í forstofu / hol, eldhús, stofu / borðstofu, 3 svefnherbergi, fataherbergi (inn af hjónaherbergi), baðherbergi, geymslu, sameiginlegt þvottahús og vagna- og hjólageymslu.
Lýsing eignar:
Forstofa / hol: Komið er inn í rúmgóða forstofu / hol, hvítir forstofuskápar eru á stigagangi fram við inngang, parket á gólfi. Í skáp í holi er tengi fyrir þvottavél og þurrkari.
Stofa / borðstofa : Í alrými, björt og rúmgóða, úr stofu er gengið út á suður svalir, innfelld loftljós, parket á gólfi.
Eldhús: Í alrými, rúmgott eldhús sem nýlega hefur verið endurnýjað, borðkrókur, hvít eldhúsinnrétting með kvarts borðplötu, gashelluborð, tveir AEG bakaraofn og er annar þeirra bæði venjulegur ofn og örbylgjuofn, innfelldur vaskur, vínkælir, tvöfaldur ísskápur fylgir ekki með, innbyggð uppþvottavél fylgir ekki með, innfelld loftljós, parket á gólfi.
Hjónaherbergi / fataherbergi: Rúmgott, fataherbergi með opnum fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott parketlagt herbergi, innfelldur hvítur fataskápur.
Svefnherbergi 3: Gott parketlagt herbergi, hvítur fataskápur.
Baðherbergi: Var endurnýjað 2020. Hvít innrétting og speglaskápur, upphengt salerni, sturta, handklæðaofn, flísar á gólfi og veggjum að mestu.
Geymsla: Í kjallara, stærð 3.9 fm.
Sameign: Snyrtileg sameign með sameiginlegu þvottahús og vagna- og hjólageymslu.
Húsið: Er steinsteypt og byggt árið 1948. Í stigagaganginum eru fjórar íbúðir.
Lóð: Sameiginleg 488.2 fm skjólgóð gróinn lóð móti suðri, steyptar tröppur að húsi.
Staðsetning: Smellið hér.
Samkvæmt upplýsingum frá seljanda hefur húsið verið endurnýjað töluvert að utan og innan undanfarin ár m.a.:
Íbúð:
* Ný eldtefjandi hurð út í stigaganginn skv. HMS staðli.
* Allar innihurðar og dyr innan íbúðar nýjar með felliþröskuldi nema inn á baðherbergi þar sem er hefðbundinn þröskuldur.
* Íbúðin var heilflotuð og skipt var um gólfefni á allri íbúðinni.
* Eldhús fært í stofuna og opnað á milli rýma.
* Ný eldhúsinnrétting með kvarts borðplötu.
* Öllum ofnum skipt út og hengdir á veggina í stað þess að sitja á gólfinu.
* Loft tekin niður í eldhúsi og stofu og innfelld lýsing sett upp í þeim rýmum auk annarrar lýsingar.
* Dregnir nýir vírar í allar raflagnir. Allir tenglar og rofar endurnýjaðir. Einnig sett sér rafmagnstafla í eldhús fyrir eldhúsið.
* Baðherbergi endurnýjað 2020.
Húsið / sameign:
* 2006: Dregið rafmagn í sameign og sett ný rafmagnstafla í kjallara.
* 2010: Skipt um skolplagnir og brunn.
* 2012: Þakrennur endurnýjaðar, lagaðar ofan á húsið. Drenað meðfram húsinu.
* 2014: Sameign í kjallara tekin í gegn og máluð. Framkvæmdir í garði. Skipt um gras.
* 2015: Steypuviðgerðir fyrir aftan hús (utanhúss þar sem þurfti), neðstu þrep í tröppum steyptar upp og gert við þar sem þurfti annars staðar í tröppum. Ný útiljós sett upp.
* 2018 - 2019: Hús steinað að utan. Þak yfirfarið og málað. Ný útidyrahurð sett upp, skipt um allt gler í íbúðinni (fyrir utan baðherbergi) og skipt um svalahurð. Þakkantur endurbyggður.
Hér er um að ræða einstaklega fallega og mikið endurnýjaða eign í fallegu vel við höldnu fjölbýlishúsi. Frábær staðsetning í hjarta Reykjavíkur þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, verslanir og náttúruna. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir:
Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.