Lýsing
Nánari lýsing.
Gengið inn á gafli hússins, niður nokkur þrep og komið inn í snyrtilegan gang, sem nýtist sem anddyri þar sem dúkur er á gólfi og fatahengi.
Hol: Frá anddyri er komið inn í hol og þaðan inn í önnur rými. Parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð, gluggar á þrjá vegu og parket á gólfi.
Eldhús: Nýleg hvít innrétting, gott skápapláss og góð vinnuaðstaða. Á gólfi eru vínilflísar.
Svefnherbergi: Rúmgott með stórum glugga til suðurs. Í svefnherberginu er nýlegur fataskápur og inn af herberginu er lítið fataherbergi.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað með vínilflísar á gólfi, flísar á veggjum, falleg innrétting, vegghengt salerni og flísalagður sturtuklefi.
Sérgeymsla íbúðar 2,1 fm. og þvottahús i sameign. Þvottahúsið er snyrtilegt með Epoxíð á gólfi og nýlega verið skipt um glugga.
Skv. upplýsingum frá seljanda voru baðherbergi og eldhús endurnýjuð 2020. Þá voru gólf flotuð, gólfefni endurnýjuð og sett ný eldvarnarhurð inn í íbúð. Þá voru dren- og frárennslislagnir undir húsi endurnýjaðar árið 2019. Sameign var einnig flotuð það ár, nýr gólfdúkur lagður á gang, Expoxy sett á gólf í þvottahúsi, snjóbræðslulagnir lagðar austan við hús og þakrennur endurnýjaðar. Árið 2021 var frárennslis stammi endurnýjaður upp að 2. hæð hússins og skipt um neysluvatnslagnir að hluta. Þak hússins verður málað í sumar.
Mikið endurnýjuð og virkilega hlýleg íbúð - og Hlíðarnar halda sínum sjarma. Stutt í ýmsa þjónustu s.s. leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og verslanir.
Frekari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson, löggiltur fasteignasali, í síma 774 7373 og ragnar@heimili.is
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.