Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir
Vista
svg

764

svg

561  Skoðendur

svg

Skráð  1. jún. 2025

fjölbýlishús

Klukkuvellir 1

221 Hafnarfjörður

82.900.000 kr.

715.889 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2330210

Fasteignamat

71.950.000 kr.

Brunabótamat

66.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2015
svg
115,8 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Domusnova og Sölvi Sævarsson lgf, kynna: Vel skipulögð og björt 4ra herbergja endaíbúð á 1 hæð með sérinngangi við Klukkuvelli 1 í Hafnarfirði. Stór sólpallur með skjólveggjum sem snýr í suðvestur.
Húsið er byggt 2015 og er fjögurra hæða steypt fjölbýlishús með lyftu. Hleðslustöðvar á lóð framan við húsið.

Íbúðin er skráð samkv. Þjóðskrá 115,8 fm og þar af er geymsla 6,8 fm.   Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 78.250.000 kr.

Allar nánari uppl.  veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 eða solvi@domusnova.is 

Nánari lýsing:
Forstofa: Bjart og gott anddyri með fataskáp. Flísar á gólfi.
Barnaherbergi 1: Rúmgott herbergi inn af anddyri með fataskáp og harðparketi á gólfi.
Hol/gangur: Harðparket á gólfi.
Barnaherbergi 2: Á vinstri hönd inn af anddyri. Fataskápur og harðparket á gólfi.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með góðri eyju. í Eyjunni er spansuðuhelluborð með háf yfir. Bakarofn er nýlegur frá árinu 2018 og er í góðri vinnuhæð, nýleg innfelld uppþvottavél frá 2024 í innrettingu sem fylgir eigninni. Harðparket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Harðparket á gólfi. Gengið er úr stofu á stóran sólpall með skjólveggjum sem snýr í suður og suðvestur. Innfelld led lýsing í loftum.
Hjónaherbergi: Fataherbergi er inn af hjónaherbergi með góðu skápaplássi. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt hvítum veggflísum og dökkar gólfflísar. Góð walk inn sturta með glerþili. Eikarinnrétting með handlaug. Upphengt salerni og handklæðaofn á baði.
Þvottahús: Flísar á gólfi. Góð innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Skolvaskur í innréttingu og þvottasnúrur. Gluggi á þvottahúsi.

Geymslur: Sér 6,8 fm geymsla í sameign og einnig erstórar sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur.
Lóð: Frágengin lóð með tyrftri grasflöt. Skýli fyrir sorptunnur er fyrir framan húsið.

Hússjóður: Húsgjöld á mánuði er 30.451. með framkvæmdargjaldi. Heildarstaða framkvæmdarsjóðs er 1.460.293.- kr Heildarstaða hússjóðs er 188.542-.kr.

Húsið er á skjólgóðum stað við Klukkuvelli 1 á Völlunum í Hafnarfirði. Klukkuvellir eru við Skarðshlíð sem er í töluverðu skjóli fyrir norðan áttinni og beint á móti suðri. Íbúðin er falleg 4 herbergja og vönduð. Gott pláss er í kringum húsið og ekkert annað fjölbýli ofan í húsinu. Stutt í skóla og leikskóli er í næsta húsi. 

Upplýsingar frá eigendum með framkvæmdir síðustu ára:

-Skipt um parket á allri íbúðinni í október 2024 og smíðaðir nýir skápar í eldhúsinnréttingu undir vask.
-Ný uppþvottavél sett í innréttingu 2024
-Allir gluggar á suður/vestur hlið íbúðarinnar þéttaðir vor 2025 og verða málaðir að innan áður en íbúð verður afhend.
-Allir gluggar á suður hliðinni málaðir að utan 2024-2025 
-Gluggar í stigahúsi voru þéttaðir og skipt um og lagað þakpappa i kringum stigahús.
-Rafmagnshleðslustöðvar settar upp 2024 með samning við ON.
-30 fm sólpallur byggður 2018 - pallurinn er samþykktur af hafnarfjarðarbæ og er sú samþykkt þinglýst af eigendum hússins. 
-Nýleg þvottahús innrétting - sett upp að hluta 2020. Kláruð 2024.
-Friðað hraun er norðan megin við húsið á milli hverfanna.

 
Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða solvi@domusnova.is 
 – eða skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 79.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.
 
 

Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone
Domusnova fasteignasala

Domusnova fasteignasala

Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
phone