Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1972
139,8 m²
5 herb.
1 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Virkilega falleg, rúmgóð og vel skipulögð 139,8 fm íbúð á þriðju hæð með miklu og fallegu útsýni við Tjarnarból 8, 170 Seltjarnarnesi. Íbúðin er með góðum svölum og fjórum svefnherbergjum. Búið að endunýja eignina nokkuð síðustu ár. Húsið sjálft lítur vel út var múrviðgert og málað 2022, einnig voru svalagólf tekin í gegn. Íbúðin er með sérmerkt bílastæði fyrir aftan hús þar sem búið er að tengja fyrir hleðslustöð.Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og búr, rúmgóða stofu og borðstofu, fjögur svefnherbergi, hol, baðherbergi, þvottahús og geymslu.
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í góða forstofu með skáp og flísum á gólfi.
Stofa og borðstofa: Mjög rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum. Útgengi út á suður svalir með virkilega fallegu útsýni. Parket á gólfi.
Eldhús: Viðar innrétting, góður borðkrókur, flísar á gólfi og gluggi. Gott búr er innaf eldhúsi.
Baðherbergi: með hvítri innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu, upphengdu salerni og glugga. Flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús: Er innan íbúðar með hillum.
Herbergin eru fjögur og eru á svefnherbergisgangi.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, með góðum skáp og parketi á gólfi.
Hin þrjú herbergin seru svipað stór með parketi á gólfi. Tvö herbergjanna með fataskápum.
Geymslan er 12 fm og er þar opnanlegur gluggi. Nýlega búið að malbika bílastæði fyrir aftan hús með sérmerktu stæði fyrir íbúðina. Búið að tengja fyrir hleðslustöð.
Sameign er öll hin snyrtilegasta. Húsið hefur fengið gott viðhald og m.a. endurnýjaðir gluggar í öllu húsinu. Stigagangurinn er á pöllum og er ein íbúð á hverjum palli og því gott næði við hverja íbúð. Engin íbúð er fyrir ofan þessa eign.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. jún. 2016
40.100.000 kr.
47.100.000 kr.
139.8 m²
336.910 kr.
3. jan. 2013
28.800.000 kr.
31.500.000 kr.
139.8 m²
225.322 kr.
22. jan. 2010
26.600.000 kr.
29.000.000 kr.
139.8 m²
207.439 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025