Lýsing
Um er að ræða nýja 107.2 fm þriggja herbergja nýja íbúð á 2.hæð í algerlega endurnýjuðu húsi við Garðsenda 3 miðsvæðis í Reykjavík.
Allar endurbætur sem hafa átt sér stað á heildar húseign hafa verið gerðar að mestu á s.l. 5 árum.
ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR.
Nánari upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900.820 eða sveinn@landmark.is
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
Eignin skiptist á eftirfarandi hátt:
Sameiginlegt anddyri með íbúð á 1.hæð, hol/forstofu, tvö svefnherbergi, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi, þvottaherbergi og sér geymslu í kjallara.
Nánari lýsing á eign:
Komið er inní sameiginlegt anddyri með íbúð á 1.hæð, gengið er upp tröppur og komið uppá stigapall og þaðan er gengið inní hol íbúðar og þar er fataskápur.
Stofa/borðstofa er opið og bjart rými með gluggum á þrjá vegu útgengt er á suð-vestur 10.9 fm svalir úr stofu rými.
Tvö góð svefnherbergi eru á hæðinni með fataskápum, hjónaherbergi er mjög rúmgott og er útgengt á svalir úr barnaherbergi.
Snyrtilegt eldhús með nýrri eldhúsinnréttingu með eldunareyju, mjög gott geymslupláss í innréttingu, innbyggður ísskápur og gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Baðherbergi er endurnýjað með flísum á gólfi og veggjum, Walk-in sturtuklefi með glerskilrúmi, vegghengt salerni, innrétting undir vask með skúffum og skáp.
Þvottaherbergi er við hlið baðherbergis.
Rúmgóðar 10.9 fm suð-vestur svalir eru út frá stofurými.
Gólfefni: Harðparket og flísar á gólfum íbúðar.
VANDAÐAR INNRÉTTINGAR OG FATASKÁPAR FRÁ HTH, ELDHÚSTÆKI FRÁ AEG.
Nánar um heildarhúseign og endurbætur á húsi s.l ár.
Töluverð mikil endurnýjun hefur átt sér stað á húseign og íbúðarrýmum s.l ár en það er algerlega búið að endurnýja múrhúð, þak, þakeinangrun, burðarvirki og þakjárn.
-Suðurhlið eignar verður klædd með dökkri klæðningu eins og framan á húsi, búið að skipta um alla glugga og gler í húsinu, raflagnir, rafmagnstöflu og tengla, neyslu og vatnslagnir hafa verið endurnýjaðar.
-Innréttingar, hurðar og öll gólfefni í húsi er endurnýjað. Allt var hreinsað út úr íbúðum, einangrað upp á nýtt og nýjir milliveggir í öllu húsinu.
-Búið er að jarðvegskipta lóðinni, þá er búið að steypa upp nýjar svalir á hæðum og stoðvegg meðfram húsi, bílaplan, tröppur og stétt þar sem að aðkoma er að húsi.
-Dren og skólplagnir endurnýjaðar, en skólp var alveg endurnýjað frá risíbúð og út í götu. Gólf voru brotin upp í kjallara og skipt um jarðveg og endursteypt.
-Hiti er í bílplani, stéttum og tröppum.
Eignin stendur á mjög góðum og rólegum stað. Stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla, stofnbrautir.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat