Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Heimir Hafsteinn Eðvarðsson
Árni Björn Erlingsson
Vista
lóð

Kerhraun B 115

805 Selfoss

13.900.000 kr.

Fasteignanúmer

F2344472

Fasteignamat

1.315.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
0 m²
svg
0 herb.

Lýsing

 
Kerhraun, 805 Selfoss, Sumarhúsalóð með teikningum, útveggjum og innveggjum.

Fasteignaland kynnir. Sumarhúsalóð  í Kerhrauni í Grímsnes-og Grafningshreppi.  Um er ræða 4.959 fm eignarlóð með fallegu útsýni. 
Samþykktar teikningar fyrir 115,4 fm húsi fylgja og er búið að smíða útveggi hússins ásamt innveggjum sem fylgja með í kaupum. 
Kalt vatn, rafmagn og heitt vatn á svæðinu.
Samkvæmt teikningum er gert ráð fyrir forstofu, þremur herbergjum, tveimur böðum, þvottahúsi, stofu og eldhúsi.

Byggja má aðalhús ásamt geymslu eða gestahúsi á lóðinni sem eru samanlagt 148.77 fm sem er miðað við 3 % nýtingarhlutfall á þessari 4.959 fm lóð.
Miðað við að búið sé að samþykkja teikningu af 115.40 fm húsi þá má aukahúsið / geymslan vera 33.37 fm.
Einnig er heimild til að byggja allt að 15 fm smáhýsi innan byggingarreits lóðarinnar án byggingarleyfis, þegar aðalhúsið er risið.   

Þetta er lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið).
Árgjald í félag sumarhúseiganda er ca. kr. 50.000 á ári. 

Stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins. Stutt er í veiði, sundlaug, golfvöll, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir. Selfoss er í ca. 18 km fjarlægð og því stutt í alla þjónustu. Frá Reykjavík eru um 70 km sé ekið um Hellisheiði, styttra um Nesjavallaveg.

Upplýsingar gefa: 
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 898-0508 netfang: arni@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is

Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.
Fasteignaland ehf

Fasteignaland ehf

Skeifunni 2, 108 Reykjavík.