Lýsing
Nánari lýsing.
Forstofan er rúmgóð með flísum á gólfi og fataskápum.
Rúmgott sjónvarpshol miðsvæðis í húsinu.
Stórt og bjart eldhús með tveimur gluggum, borðkrók og innréttingu með góðu skápaplássi.
Stofa / borðstofa er mjög rúmgóð með parketlögðu gólfi og gluggum á tvo vegu.
Herbergjagangur, við herbergjagangur eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Herbergi 1 er stórt hjónaherbergi sem er ný tekið í gegn, stórir fataskápar.
Herbergi 2 ágætt barnaherbergi með parketlögðu gólfi.
Herbergi 3 ágætt barnaherbergi með parketlögðu gólfi.
Baðherbergi er í endurnýjunarferli,búið er að fræsa fyrir gólfhita, vatnskassi fyrir innbyggt salerni komið og lagnir til staðar.
Þvottahús/bað Mjög rúmgott þvottahús er inn af eldhúsi með útgengi útí bakgarð. Tengi fyrir þvottavél & þurrkara og sturtuklefi.
Baðherbergi, Innaf þvottahúsi er baðherbergi með salerni og vaski.
Úr þvottahúsi er aðgengi upp á geymsluloft.
Geymsla er inn af þvottahúsi.
Bílskúr 54,8 fm frístandandi bílskúr fylgir eigninni með innréttingu, rafmagni, hita og vatni. 3ja fasa rafmagn er í bílskúr. Endurnýjað rafmagn og rafmagnstafla er í bílskúr.
Bílaplan stórt malbikað bílaplan er framan við húsið
Endurbætur:
2025 flest gler endurnýjuð.
2025 þakkantur ndurnýjaður.
2024 Hjónaherbergi allt tekið i gegn og settir nýjir fataskápar.
2023 Rofar og tenglar verið endurnýjaðir og hluti ofnloka ásamt lýsingu.
Staðsetning er mjög góð á rólegum stað innst í botngötu með útsýni inn Hvalfjörðinn.
Frábær þjónusta er hjá sveitarfélaginu og sérstaklega gert vel við barnafólk. Melahverfiið er vinnsæll þéttbýliskjarni í Hvalfjarðarsveit, Einumgis er um 10 mínútna akstursfjarlægð til Akraness og um. 30 mín.til Mosfellsbæjar. Stætisvagna samgöngur eru útr hverfinu.
Sveitarfélagið er eitt af stöndugri sveitarfélum landsins og njóta íbúar þess í útsvari og gjöldum. Meðal annars er gjaldfrír leikskóli í hverfinu, í 5 klst. á dag, frá klukkan 9-14, fyrir börn frá eins árs aldri. Eldri börnunum er ekið í Heiðarskóla sem er örstutt frá. Þá er einnig 25% afsláttur af fæðiskostnaði í grunnskóla og leikskóla auk þess sem veittur er um 70 þús.kr. íþrótta- og tómstundastyrkur til barna, upp að 18 ára aldri.
Þetta er vel skipulagt einbýlishús á einni hæð á rólegum og góðum stað í vaxandi hverfi.
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á sb@gimli.is
Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli gerir betur...
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...