Lýsing
Um er að ræða vel staðsetta 383 m² einbýlishúsalóð rétt við miðbæ Ólafsvíkur, á lóðinni stendur 30 m² bílskúr sem byggður var 2002.
Byggingamagn: Viðmið Snæfellsbæjar á byggingamagni er 0,4 og væri því mögulegt heildarbyggingarmagn 120 fm á lóðinni, tekið skal fram að sækja um það og fá endanlega staðfestingu.
Staðsetning er í gróinn götu með fallegum eldri húsum og er Sjómannagarðurinn handan við götuna.
Hér flott tækifæri til byggingar húss á frábærum stað og bílskúr tilbúinn á staðnum.
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, Löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á sb@gimli.is
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...