Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Hlynur Bjarnason
Dagrún Davíðsdóttir
Jason Kr. Ólafsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1941
svg
219,6 m²
svg
5 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Betri Stofan, Jason Kristinn og Gunnar kynna: Glæsileg 235 fm eign á besta stað við Þingvallavatn. Miklar breytingar hafa verið gerðar á húsinu og lóðinni á síðustu árum þar sem bætt var við 15 fm gestahúsi með sérbaðherbergi. Byggður var viðhaldsfrír pallur sem tengja saman þrjú´ hús, hannaður af Steinunni Eik arkitekt. Baðhúsið er með gufu og sturtuaðstöðu einnig er hægt að nota það sem gestahús. Mörg há tré hafa verið fjarlægð til að fá útsýni yfir Þingvallavatn. Útilýsing er frá Lumex. SKV. HMS er eignin skráð 219,60 fm., en er í raun 235 fm. Fasteignamat fyrir árið 2026 er kr. 145.650.000-

Húsið er 159,4 fm ásamt 16,0 fm baðhúsi, 15 fm gestahúsi og 44,2 fm bátaskýli. Undir sumarhúsinu er u.þ.b. 100 fm óskráð aukarými sem ekki er full lofthæð en hægt er að stækka ef vilji er fyrir því. Steyptur grunnur er undir sumarhúsinu og bátaskýlinu. Á stofuveggjunum hefur fengið að halda sér upprunalegur rauðviður.
 Sumarhúsið er hitað með lofthiturum frá Mitsubishi sem eru nýlegir og rafmagnsofnum í lokuðum rýmum.  Öll ljós eru frá Lumex, Gira rofar. Rafmagn í öllum húsum er ný yfirfarið og í sumarhúsinu var það endurnýjað. Vatnslagnir í sumarhúsi eru nýlega endurnýjaðar. Gólfefni hefur verið endurnýjað með flísum frá Vídd. Glæsilegt eldhúsinrétting frá Vipp sérpöntuð frá Epal með stórri eyju í því miðju.

Allt húsið nýmálað að innan. Komið er inn í rúmgott rými sem býður upp á ýmsar útfærslur hvað varðar nýtingu, þar eru tvennar dyr, sitthvoru megin. Stofurnar eru sérstaklega glæsilegar með útsýni út á vatnið. Stórir gólfsíðir gluggar eru í stofunum. Borðstofa, arinstofa, lesstofa og sjónvarpsstofa. Arinn er í miðju rýminu.  Auðvelt er að breyta 2 stofum í svefnherbergi.  Í húsinu eru nú 2 stór svefnherbergi sem eru í viðbyggingum. Viðbyggingar eru á sitthvorum enda hússins og tengdar verönd.  Eitt stórt baðherbergi er í húsinu og eitt minna salerni. Baðherbergið er nýlega endurnýjað með glæsilegum blöndunar- og hreinlætistækjum frá Burlington, ásamt baðkari.  Allar endurbætur og stækkanir á upprunalega sumarhúsinu voru hannaðar af Guðmundi Kr. Guðmundssyni, arkitekt. Baðhúsið var byggt 1989 en heiti  potturinn er nýlegur.  Lóðin stendur undir Svínahlíð í Heiðarbæjarlandi, sem er einstaklega skjólgóður staður undir brattri hlíð. Lóðin sjálf er rúmur hektari eða 1,3 endalóð niðri við vatnið.
Sjón er sögu ríkari.

Nánari upplýsingar veita Jason Kristinn Ólafsson, sími 775-1515 jason@betristofan.is og Gunnar S. Jónsson, gunnar@betristofan.is





Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. júl. 2022
40.700.000 kr.
140.000.000 kr.
219.6 m²
637.523 kr.
31. maí. 2021
30.500.000 kr.
50.000.000 kr.
10101 m²
4.950 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone